Fékk hugmynd að góðgerðarframtaki í lagi Mugisons 21. desember 2011 08:30 Sandra ætlar að nota jólafríið í að gera eins mörg hálsmen og hún getur.fréttablaðið/gva „
Mig langaði bara að hjálpa til,“ segir mannfræðineminn Sandra Hrafnhildur Harðardóttir, sem hefur hafið sölu á handgerðum hálsmenum til styrktar hinum ýmsu góðgerðarsamtökum. Hálsmenið kallar hún Vonarnisti og segir því ætlað að vera áminningu um að einhvers staðar megi alltaf finna von. Hugmyndina fékk Sandra þegar hún var að hlusta á útvarpið. „Ég var að hlusta á nýtt lag með Mugison, Þjóðarsálina, þar sem orðið vonarneisti kemur fyrir. Ég fór strax að hugsa um þetta orð og hvaða jákvæðu þýðingu það hefði. Út frá því velti ég fyrir mér af hverju enginn hefði búið til vonarnisti, og ákvað að gera það bara sjálf.“ Hún hafði aldrei búið til skartgrip á ævinni þegar hugmyndin fæddist en lét það ekki stöðva sig. Hálsmenið er búið til úr vírkúlu með glitsteini innan í og er í síðri keðju. Sandra er námsmaður og tilheyrir þannig efnalitlum hópi en hún segir aldrei hafa komið til greina að græða sjálf á framtakinu. „Mig langaði að styrkja samtök sem eru að hjálpa þeim sem þurfa aðstoð. Undanfarið hefur verið svo mikið í fréttum hvað margir eiga bágt, miklu meira bágt en ég, og mig langaði til að leggja mitt af mörkum.“ Sandra ákvað að tileinka hverjum samtökum einn mánuð og gefa ágóðann af sölu nistisins að fráteknum efniskostnaði til þeirra í mánaðarlok. Þannig er janúar mánuður Fjölskylduhjálpar, í febrúar styrkir hún Blátt áfram, Stígamót í mars og Rauða krossinn í apríl. Viðbrögð við framtakinu hafa verið mjög jákvæð að sögn Söndru, sem hefur á tveimur dögum fengið á annan tug pantana, og hefur fólk haft samband við hana og boðið henni hjálp sína. Hún útilokar ekki áframhald á verkefninu. „Mig langar að sjálfsögðu að halda áfram með þetta ef ég fæ góðar undirtektir og þetta gengur vel.“ Vonarnistið kostar 4.000 krónur og hægt er að leggja inn pöntun fyrir hvaða mánuð sem er á Facebook-síðu með sama nafni.- bb
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira