Magga Gnarr stefnir hátt í poppbransanum 11. desember 2011 22:15 Margrét hefur unnið til verðlauna í módelfitness og sendir á næstunni frá sér nýtt lag. fréttablaðið/anton
Söngkonan Margrét Gnarr hefur látið lítið fyrir sér fara síðan hljómsveitin Merzedes Club lagði upp laupana. Margrét frumflytur nýtt lag í kvöld. „Ég held að þetta sé poppslagari," segir söngkonan Margrét Edda Gnarr um lagið Waiting for an Accident sem hún frumflytur í kvöld á tískusýningu verslunarinnar KISS á barnum Buddha í miðborg Reykjavíkur. Margrét stefnir hátt í poppbransanum og hyggst hefja vinnu að plötu á næstu dögum. „Við erum að byrja að vinna í plötu núna og það verður örugglega á næsta ári sem ég gef meira út," segir hún. Andrea Ólafsdóttir samdi textann við lagið og Einar Örn Kristjánsson og Einar Óli Sigurðarson sömdu lagið. „Semsagt tveir sem heita Einar," segir Margrét og hlær. Hún hefur látið lítið fyrir sér fara síðan hún tók við af Rebekku Kolbeinsdóttur sem söngkona í hljómsveitinni sálugu Merzedes Club. Hún hefur þó ekki setið með hendur í skauti þar sem hún vann silfurverðlaun í tveimur flokkum á WBFF-Evrópumótinu í fitness á dögunum. „Ég er búin að vera frekar róleg, en fór í söngnám í söngskólanum í Reykjavík. Ég hef alltaf stefnt að þessu," segir Margrét. „Ég var að keppa í fitness og hafði því lítinn tíma fyrir tónlistina þá. En strax eftir keppnina fór ég að einbeita mér að laginu og klára það fyrir tískusýninguna." Hvernig fara popp og fitnessið saman? „Bara vel. Ég fer á svið í módelfitnessinu og það er mjög gott fyrir sjálfstraustið." Margrét er dóttir Jóns Gnarr borgarstjóra. Hún játar að reynsla hans úr skemmtanabransanum geti komið að góðum notum. „Já, ég get alltaf talað við hann. Hann er náttúrulega búinn að vera í þessum bransa svo lengi." Er hann búinn að heyra lagið? „Nei, það er enginn búinn að heyra lagið." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira