Skemmtikvöld fyrir konur og karla 29. nóvember 2011 15:00 Ný fatalína Herrafataverzlunar Kormáks & Skjaldar verður frumsýnd næsta miðvikudag. Guðmundur Jörundsson hannar línuna og lofar góðri stemningu með undirspili hljómsveitarinnar Hringja. Mynd/Anton Brink
Ný fatalína Herrafataverzlunar Kormáks & Skjaldar verður frumsýnd í Þjóðleikhúskjallaranum á morgun, miðvikudag. Línan er hönnuð af Guðmundi Jörundssyni, yfirhönnuði verslunarinnar. Línan er óbeint framhald þeirrar er frumsýnd var í fyrra en inniheldur þó ný snið og önnur efni. „Efnin eru aðeins dempaðri og sniðin svolítið flippaðri en báðar innihalda línurnar buxur, vesti og jakka,“ útskýrir Guðmundur. Herrafatasýningin er að sögn Guðmundar með öðru sniði en venjuleg tískusýning því um eiginlegt skemmtikvöld er að ræða þar sem skemmtikraftar troða upp á milli fatasýninganna. „Fyrirsæturnar koma inn alls fimm sinnum yfir kvöldið og er tískusýningin brotin upp með ýmsum skemmtiatriðum þess á milli. Í fyrra kom Helgi Björnsson fram bæði sem fyrirsæta og skemmtikraftur og það sama verður upp á teningnum í ár, nema nafn poppstjörnunnar er enn hernaðarleyndarmál. Ég vil líka taka fram að þetta er ekki sérstakt herrakvöld heldur er konum sérstaklega boðið að mæta,“ segir Guðmundur. Um tíu fyrirsætur taka þátt í sýningunni og sýna alls fimmtíu heildarklæðnaði og má því gera ráð fyrir að mikill undirbúningur liggi að baki kvöldinu. „Við erum á fullu þessa dagana við að máta fötin á fyrirsæturnar, enda þarf að klæða marga upp á. Við byrjum á því að sýna fatnað úr Herrafataverzluninni og endum svo sýninguna á nýju línunni. Í fyrra var mikið fjör baksviðs hjá strákunum en sem betur fer höfðum við nóg pláss og enginn lenti í því að týna skóm eða öðru lauslegu.“ Frítt er inn og hefst sýningin klukkan 21.00.
Mest lesið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Kristmundur Axel tók við af Bubba Lífið Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Sjá meira