Lífið

Íslensk matarhönnun með þeim bestu

Guðfinna og Brynhildur.
Guðfinna og Brynhildur. Mynd/Arnþór
Þrjú íslensk matarhönnunarverk eru til umfjöllunar í nýrri bók sem þýska bókaforlagið Gestalten gefur út.

Bókin, sem ber titilinn Delicate, New Food Culture, fjallar um matarmenningu samtímans og þar á meðal matarhönnun. Brynhildur Pálsdóttir hönnuður á hlut í þeim þremur verkefnum sem tekin eru fyrir og eru velþekkt hérlendis.

„Í bókinni er tekið fyrir allt það helsta sem hefur verið á döfinni á þessu sviði matarhönnunar og það er flott hvað bókin nær að fanga verkefni víða að þannig að jú, það er mjög gaman að vera með í þessu," segir Brynhildur.

Íslensku verkefnin sem gert er skil í bókinni eru sem fyrr segir þrjú. Fjallað er um skyrkonfektið frá Erpstöðum sem varð til í verkefninu Stefnumót hönnuða og bænda í vöruhönnunardeild Listaháskóla Íslands. Verkefninu var stýrt af Brynhildi, Sigríði Sigurjónsdóttur, prófessor í vöruhönnun, og Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur.

Bókin Delicate fæst í Sparki við Klapparstíg.
Þá er fjallað um súkkulaðieldfjöll Brynhildar sem hún vann í samvinnu við Hafliða Ragnarsson súkkulaðimeistara, sem mun á næstunni opna litla súkkulaðibúð í Aðalstræti.

Einnig leirpottinn svokallaða sem er samstarfsverkefni Sigríðar Erlu Guðmundsdóttur, Brynhildar Pálsdóttur og Guðfinnu Mjallar. Hann fæst meðal annars í Kokku.

Brynhildur og Guðfinna útskrifuðust sem hönnuðir árið 2004 og Brynhildur segir þær hafa þá tekið meðvitaða ákvörðun um að horfa inn í heim matarhönnunar.

„Það er nærtækt fyrir okkur á Íslandi að vinna meira með matvælin.

Við eigum ekki mikið af timbri eða öðru hráefni en við eigum nóg af mat og við gætum því verið að gera margt nýtt í þeim geira svo sem að þróa nýjar og áhugaverðar matvörur og farið meira í skapandi áttir en við höfum verið að gera," segir Brynhildur.

Hún bætir við að nú séu fyrir hendi mörg tækifæri fyrir bændur og aðra í matvælageiranum til að vinna að slíkum verkefnum.

„Þá gætu hönnuðir komið meira inn í slíka þróunarvinnu."

juliam@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.