Leika lausum hala í Borgarleikhúsinu 22. október 2011 16:00 Þeir Bragi Valdimar, Guðmundur Kristinn og Sigtryggur Baldursson stjórna Hljómskálanum, nýjum tónlistarþætti RÚV.
Sigtryggur Baldursson verður væntanlega með væna magapínu af stressi í næstu viku því á fimmtudaginn stendur hann á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu þegar Kirsuberjagarðurinn verður frumsýndur og strax næsta kvöld hefur göngu sína á RÚV tónlistarþáttur hans, Braga Valdimars Skúlasonar og Guðmundar Kristins Jónssonar, Hljómskálinn. „Ég hef áður samið fyrir leikhúsið og finnst það alltaf mjög skemmtilegt,“ segir Sigtryggur en hann leikur ásamt þeim Óttari Sæmundsen og Leifi Jónssyni lausum hala á sviði Borgarleikhússins í næstu viku. Tríóið semur jafnframt tónlistina í verkinu. „Við erum að elta leikarana út um allt í ákveðnum senum, Hilmir Snær, leikstjóri verksins, hugsaði okkur í svipuðum hlutverkum og hljómsveitin No Smoking Band hefur í kvikmyndum Emirs Kusturica,“ útskýrir Sigtryggur. Hann hefur töluvert fengist við leikhústónlist, samdi meðal annars hljóðheiminn fyrir leikverkið Enron sem naut töluverðra vinsælda í fyrra í Borgarleikhúsinu. Og svo er það Hljómskálinn sem verður væntanlega fimm þættir og fjallar um allar mögulegar hliðar íslenskrar tónlistar. Sigtryggur er viss um að hann hafi komist hjá því að móðga einhvern og segir samstarfið í þáttunum hafa gengið framar öllum vonum. „Útkoman var ótrúlega skemmtileg og fólk átti mjög auðvelt með að vinna saman, ég bjóst nú við meira neistaflugi,“ segir Sigtryggur, en meðal þeirra sem leiða hesta sína saman eru FM Belfast og Jóhann Helgason og hljómsveitin Valdimar og Magnús Eiríksson. - fgg
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira