Lífið

Leika lausum hala í Borgarleikhúsinu

Þeir Bragi Valdimar, Guðmundur Kristinn og Sigtryggur Baldursson stjórna Hljómskálanum, nýjum tónlistarþætti RÚV.
Þeir Bragi Valdimar, Guðmundur Kristinn og Sigtryggur Baldursson stjórna Hljómskálanum, nýjum tónlistarþætti RÚV.
Sigtryggur Baldursson verður væntanlega með væna magapínu af stressi í næstu viku því á fimmtudaginn stendur hann á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu þegar Kirsuberjagarðurinn verður frumsýndur og strax næsta kvöld hefur göngu sína á RÚV tónlistarþáttur hans, Braga Valdimars Skúlasonar og Guðmundar Kristins Jónssonar, Hljómskálinn.

„Ég hef áður samið fyrir leikhúsið og finnst það alltaf mjög skemmtilegt,“ segir Sigtryggur en hann leikur ásamt þeim Óttari Sæmundsen og Leifi Jónssyni lausum hala á sviði Borgarleikhússins í næstu viku. Tríóið semur jafnframt tónlistina í verkinu. „Við erum að elta leikarana út um allt í ákveðnum senum, Hilmir Snær, leikstjóri verksins, hugsaði okkur í svipuðum hlutverkum og hljómsveitin No Smoking Band hefur í kvikmyndum Emirs Kusturica,“ útskýrir Sigtryggur. Hann hefur töluvert fengist við leikhústónlist, samdi meðal annars hljóðheiminn fyrir leikverkið Enron sem naut töluverðra vinsælda í fyrra í Borgarleikhúsinu.

Og svo er það Hljómskálinn sem verður væntanlega fimm þættir og fjallar um allar mögulegar hliðar íslenskrar tónlistar. Sigtryggur er viss um að hann hafi komist hjá því að móðga einhvern og segir samstarfið í þáttunum hafa gengið framar öllum vonum. „Útkoman var ótrúlega skemmtileg og fólk átti mjög auðvelt með að vinna saman, ég bjóst nú við meira neistaflugi,“ segir Sigtryggur, en meðal þeirra sem leiða hesta sína saman eru FM Belfast og Jóhann Helgason og hljómsveitin Valdimar og Magnús Eiríksson.

- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.