Innlent

„Það verður engin hoppandi gleði“

Lögreglumenn hafa verið ákaflega óánægðir með kaup sitt og kjör.
Fréttablaðið/pjetur
Lögreglumenn hafa verið ákaflega óánægðir með kaup sitt og kjör. Fréttablaðið/pjetur
„Það verður engin hoppandi gleði og örugglega mjög skiptar skoðanir,“ segir Steinar Adolfsson, framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna, um nýgert samkomulag við lögreglustjóra um álagsgreiðslur.

Samkomulagið byggir á nýlegri niðurstöðu gerðardóms um kjör lögreglumanna. Viðræðurnar snerust um að útfæra hvernig skipta ætti þeim verðmætum í formi sem lögreglumönnunum voru dæmd í formi álagsgreiðslna.

„Þetta hittir menn misjafnlega fyrir og ræðst meðal annars af samsetningu launa þeirra,“ segir Steinar. Reynt hafi verið að haga málum þannig að hækka lægri laun meira á kostnað þeirra hærri.

Samkomulagið tókst á miðvikudag og nú verður hafist handa við að kynna það fyrir lögreglumönnum. Steinar segist sjálfur vera á leið út á land til halda slíka kynningarfundi. Ekki er hins vegar um breytingar á kjarasamningum að ræða og því kemur ekki til atkvæðagreiðslu um það.

Samhliða samkomulaginu var skrifað undir viljayfirlýsingu milli sambandsins, fjármálaráðherra og innanríkisráðherra um að fara yfir framtíðarfyrirkomulag menntunar og öryggismál lögreglumanna. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×