Mötuneyti skólanna sögð sem þrælabúðir 20. október 2011 06:00 Sextán af um þrjátíu félögum í Samtökum faglærðra matreiðslumanna í grunnskólum Reykjavíkur fóru saman til Finnlands í sumar og kynntu sér skólamötuneyti þar. Gunnar Bollason er yst til hægri. Mynd/Úr einkasafni „
Vinnan í sumum mötuneytum er farin að líkjast meira þrælabúðum en eðlilegum vinnustað,“ segir í yfirlýsingu Samtaka faglærðra matreiðslumanna í grunnskólum Reykjavíkur. Gunnar Bollason, formaður samtaka matreiðslumannanna, segir að starfsfólki hafi stöðugt verið fækkað í skólamðtuneytum borgarinnar á síðustu árum. Sem dæmi starfi hann sem matreiðslumaður í Rimaskóla með tvo skólaliða sér til aðstoðar og eldi ofan í um 550 manns. Áður hafi fjórir skólaliðar starfað með honum í mötuneytinu. Í yfirlýsingu sinni segjast matreiðslumennirnir vara við fækkun starfsfólks í mötuneytum margra grunnskóla Reykjavíkur. „Gífurlegt álag er á því starfsfólki sem eftir er þar sem því er gert að vinna sömu vinnu og áður. Það virðist vera geðþóttaákvörðun hjá hverjum og einum skólastjóra hvort stöðugildum í mötuneytum er fækkað,“ segir í yfirlýsingunni. Gunnar lýsir ástandinu sem „fáránlegu“. Í sumum skólum ráði starfsfólkið ekki við að matreiða ofan í mannskapinn og að þar sé gripið til þess að leysa málið með aðkeyptum mat sem hitaður sé upp í skólunum. Það sé dýrari leið og auk þess sé sá matur ekki eins hollur og máltíðir eldaðar á staðnum. Borgaryfirvöld hafi ekki léð máls á ábendingum matreiðslumanna og óskum þeirra um úrbætur. „Foreldrar eru að borga 275 krónur fyrir hverja máltíð barnanna. Af þeim eru teknar 63 krónur í laun eins starfsmanns og viðhald. Þá eru eftir 212 krónur. Það er mikil list að moða þannig úr slíkum peningum að þeir dugi í mannsæmandi máltíð,“ segir Gunnar. Matreiðslumennirnir segja þróunina bitna á börnunum. „Vegna undirmönnunar er vegið að fagmennsku matreiðslumanna, þar sem þeir neyðast til að kaupa inn meira af tilbúnum mat en áður. Þetta stríðir gegn yfirlýstri stefnu stjórnvalda þar sem skólamötuneytum er gert að fara að stöðlum Lýðheilsustöðvar og leggja áherslu á ferskan, hollan og næringarríkan mat,“ segir í yfirlýsingu matreiðslumannanna, sem benda á misræmi hvað þessa hluti snertir milli sviða borgarkerfisins: „Skólamötuneyti sitja ekki við sama borð og matreiðslumenn hjá Velferðarsviði. Gert er ráð fyrir að þrjá matreiðslumenn og tólf aðstoðarmenn þurfi til að matreiða ofan í um það bil eitt þúsund manns hjá Velferðarsviði. Hjá Menntasviði – sem sagt í skólamötuneyti – er dæmi um að einn matreiðslumaður og tveir skólaliðar sjái um að matreiða ofan í sjö hundruð manns. Þetta er óþolandi staða sem er búið að koma okkur í!“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Fleiri fréttir Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Sjá meira