Elding raskaði leiksýningum 18. október 2011 11:00 Eldingu sló niður í miðbænum á föstudagskvöldið og raskaði frumsýningu á Hrekkjusvínunum. Á myndinni eru Tinna Hrafnsdóttir og María Heba í hlutverkum sínum. Fréttablaðið/gva „
Sýningin var við það að byrja og þá allt í einu lækka ljósin og hljóðið dettur út,“ segir Tinna Hrafnsdóttir, leikkona í Hrekkjusvínunum, en sýningin raskaðist af völdum eldingar á föstudagskvöldið. Mikið aftakaveður var á höfuðborgarsvæðinu á föstudaginn en þegar klukkan var rétt rúmlega átta um kvöldið laust eldingu niður í miðbæ Reykjavíkur og olli tímabundnu rafmagnsleysi á ýmsum stöðum. „Við lentum ansi illa í því og þetta hafði mikil áhrif á sýninguna þó að rafmagnið hafi aðeins dottið út í örfáar sekúndur,“ segir Tinna en um frumsýningu á Hrekkjusvínunum var að ræða í Gamla bíói og rafmagnsleysið gerði það að verkum að tíðni þráðlausu hljóðnemanna riðlaðist og hljóðgæði sýningarinnar voru langt í frá fullnægjandi. Sýningin fékk mjög góðar viðtökur áhorfenda þrátt fyrir að rafmagnsleysið hafi óneitanlega sett strik í reikninginn og af þeim sökum vilja aðstandendur sýningarinnar bjóða þeim frumsýningargestum sem þess óska aftur á sýninguna. „Þeim sem vilja koma aftur er velkomið að hafa samband við miðasölu Gamla bíós.“ Sýningargestir á leikritinu Svartur hundur prestsins í Þjóðleikhúsinu fengu tvö hlé vegna þess að rafmagnið datt út. „Það vill svo skemmtilega til að sýningin hefst á rafmagnsleysi svo ég er ekki viss um að áhorfendur hafi áttað sig á þessu strax,“ segir Nanna Kristín Magnúsdóttir leikkona en ljósaborðið sló út og leikararnir byrjuðu að spinna í kjölfarið. „Við erum náttúrulega þjálfuð í takast á við svona aðstæður en svo fengu áhorfendur bara aukahlé á meðan ljósaborðið var endurræst. Þetta skapaði bara meiri nánd við salinn.“ - áp
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira