Kim Larsen sagður vondur pabbi 15. október 2011 03:30 Lítið samband Kim Larsen hefur ekki hitt elstu börnin sín í fjölmörg ár. Fréttablaðið/Heiða
Kim Larsen er vafalítið einn dáðasti tónlistarmaður Dana fyrr og síðar, plötur hans seljast alltaf í bílförmum, lögin hafa lifað lengi með dönsku þjóðinni og Larsen sjálfur er erkitýpa þjóðarsálarinnar; „ligeglad“. En ný ævisaga um kappann, Solisten, hefur leitt það í ljós að Larsen er „ligeglad“ um þrjú elstu börnin sín. Larsen, sem á sex börn, hefur lítið samband við börnin sín frá tveimur fyrstu hjónaböndunum. Hann er orðinn afi en hefur sáralítið af barnabörnum sínum að segja, og þau fá ekkert að hitta sinn heimsfræga afa. Danskir fjölmiðlar fjalla ítarlega um málið enda hefur Kim Larsen verið ákaflega annt um einkalíf sitt, varið það með kjafti og klóm. Sjálfur upplifði hann mikla höfnun aðeins fimm ára gamall er faðir hans yfirgaf fjölskylduna. Bókin Solisten dregur á flot fólk, nátengt honum, sem hefur aldrei áður tjáð sig um hann. Meðal þeirra er elsta dóttirin Alice Eva sem segir í bókinni að hún hafi ekki hitt pabba sinn síðan 2007. „Ég er búin að gefast upp á því að hafa samband við hann. Hann er bara svona.“ Hún bætir því við að skilnaður móður hennar og Larsens hafi komið eins og þruma úr heiðskíru lofti en hún var þá aðeins fimmtán ára gömul. Hún hafi aldrei fengið neinar skýringar á skilnaðinum. „Þegar ég skrifaði bréf til pabba fékk ég bara póstkort frá Óðinsvéum, sem var boð um að koma og heimsækja hann og nýju kærustuna hans. Þannig er þetta alltaf hjá honum, maður þarf að ganga á eftir honum.“ - fgg
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira