Ætlar sér að stefna Regnbogabörnum 15. október 2011 09:15 Harpa Lúthersdóttir segir sér líða eins og samtökin Regnbogabörn hafi svikið sig, eftir að hafa ekki staðið við samkomulag sitt við hana árið 2003. mynd/úr safni
Stefán Karl Stefánsson Höfundur barnabókar um forvarnir gegn einelti ætlar sér að stefna samtökunum Regnbogabörnum fyrir að hafa ekki greitt sér fyrir bókina fyrir átta árum. Málið á rætur sínar að rekja til ársins 2003 þegar höfundurinn, Harpa Lúthersdóttir, gerði samkomulag við þáverandi framkvæmdastjóra samtakanna, Freyju Friðbjarnardóttur, um að gefa öllum börnum sem áttu að byrja í skóla haustið 2004 bókina að gjöf. Fjöldi barna það ár var 4.173 og lét Harpa því prenta 5.000 eintök. Framtakið var auglýst í bæklingi frá samtökunum árið 2003, en ekkert varð síðan af gjöfinni, því bókin var ekki talin nægilega góð til að gefa til grunnskólanna, að mati sérfræðinga. Harpa lagði út um tvær milljónir króna í útgáfu bókarinnar á sínum tíma. Hún hefur verið í reglulegum samskiptum við forsvarsmenn Regnbogabarna síðan bókin var gefin út, en upplagið hefur verið geymt í húsnæði samtakanna í fjölda ára. „Þetta er mjög sárt. Mér líður eins og ég hafi verið svikin,“ segir Harpa, sem var sjálf lögð í mikið einelti alla sína barnæsku og var það kveikjan að bókinni, sem ber heitið „Má ég vera memm?“. Samtökin hafa boðið Hörpu hálfa milljón króna og allar bækurnar til baka, en hún vill ekki taka því. „Ég viðurkenni að ég var svo vitlaus að trúa því að eineltissamtök stæðu við orð sín,“ segir Harpa. „En ég er með sannanir sem sýna fram á að samkomulagið var gert áður en ég lét prenta bækurnar.“ Stefán Karl Stefánsson, stofnandi Regnbogabarna, viðurkennir vissulega að mistök hafi verið gerð á sínum tíma. „Þetta voru mistök og bráðlæti í fólki í upphafi. Við tökum hluta af því á okkur,“ segir Stefán Karl. „Við buðum henni 500 þúsund og bækurnar til baka, en hún vildi ekki taka því. En við viljum leysa úr þessu máli í góðu, það er engin spurning.“ Stefán Karl segir samtökin hafa reynt allt sem í þeirra valdi stendur til þess að koma til móts við Hörpu, en allt komið fyrir ekki. Lögfræðingur Hörpu er nú að undirbúa stefnu á hendur Regnbogabörnum, og hefur fundað með forsvarsmönnum þeirra. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira