Frumsýningafjör um helgina 8. september 2011 15:30 Sveppi er á ferðinni með þriðju myndina sína.
Það verður mikið fjör í kvikmyndahúsum borgarinnar um helgina, þrjár íslenskar myndir verða frumsýndar, verðlaunamyndir frá Norðurlöndum keppast um áhorfendur í Bíó Paradís og Hollywood verður á sínum stað. Þriðja Sveppamyndin, Algjör Sveppi og töfraskápurinn, verður frumsýnd í Sambíóunum á föstudag. Fyrstu tvær myndirnar nutu mikilla vinsælda og að þessu sinni þurfa þeir Sveppi, Gói og Villi að kljást við illmenni sem ásælist skápinn hans Sveppa. Sambíóin frumsýna einnig hryllingsmyndina Fright Night með Colin Farrell í aðalhlutverki. Þar leikur írska sjarmatröllið vampíru sem flytur í dæmigert bandarískt úthverfi og gerir allt brjálað. Íslenska heimildarmyndin Ge9n fjallar um réttarhöldin yfir níumenningunum sem voru kærðir fyrir árás á Alþingi í desember 2008. Leikstjóri er Haukur Már Helgason en myndin er sýnd í Bíó Paradís. Þar verða einnig sýndar þær myndir sem tilnefndar eru til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Þá verður einnig frumsýnd heimildarmyndin Mótvægi sem fjallar um Bryndísi Pétursdóttur garðyrkjufræðing. Heimildarmyndin Knuckle verður einnig tekin til sýningar um helgina, en hún var tólf ár í vinnslu. Hún segir frá því hvernig þrjár írskar fjölskyldur leysa aldagamlar deilur sínar með blóðugum hnefaleikabardögum. Kvikmyndin Colombiana sem kemur úr smiðju Luc Besson verður frumsýnd í Laugarásbíói en myndin segir frá ungri stúlku sem verður vitni að morði foreldra sinna og ákveður að gerast leigumorðingi. Zoe Zaldana úr Avatar leikur aðalhlutverkið. Síðust en ekki síst er það síðan Melancholia Lars von Trier með Kirsten Dunst í aðalhlutverki, en myndin hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda.- fgg
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira