Óbætanlegum munum stolið úr skúr í miðbænum 8. september 2011 10:00 Vigdís Hrefna Pálsdóttir varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að brotist var inn í skúr í garðinum hjá henni og öllu stolið. Fréttablaðið/Valli „
Þetta er mikið áfall fyrir okkur og vindurinn fer svolítið úr manni,“ segir Vigdís Hrefna Pálsdóttir leikkona en brotist var inn til hennar fyrr í vikunni. Þjófarnir brutust inn í skúr í garðinum við hús Vigdísar aðfaranótt þriðjudags og létu greipar sópa. Nýbúið var að klæða skúrinn og færa öll verkfærin þangað yfir. Tapið hljóðar upp á mörg hundruð þúsund krónur en meðal þess sem tekið var eru verkfæri sem hafa tilfinningalegt gildi fyrir fjölskylduna. „Til dæmis var þarna naglbítur sem langafi minn átti og önnur verkfæri sem hafa gengið kynslóðanna á milli í okkar fjölskyldum. Einnig áttum við stórt safn af gömlum hurðarhúnum sem við höfum sankað að okkur í langan tíma en þeir voru allir teknir,“ segir Vigdís og bætir við að þessir hlutir séu óbætanlegir fyrir þau. „Við erum að gera lista yfir það sem var tekið og það er rosalega mikið. Við erum búin að kæra þjófnaðinn til lögreglu,“ segir Vigdís, sem festi kaup á húsinu á Bergstaðastræti fyrr á þessu ári. Húsið var í niðurníðslu þegar Vigdís og maður hennar, Örn Úlfar Höskuldsson, keyptu það og hafa þau unnið hörðum höndum að því að gera húsið upp og íbúðarhæft á skömmum tíma. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hlutir hafa verið teknir ófrjálsri hendi í kringum húsið. Gamlar hurðir sem þau fengu gefins og ætluðu að nota voru teknar og hjóli dóttur þeirra var stolið fyrir utan húsið fyrr í sumar. „Við erum búin að gera húsið upp að mestu leyti sjálf og okkur líður mjög vel í þessu húsi. Þess vegna finnst manni þetta kannski ennþá meiri innrás og tilfinningin er eins og maður hafi verið kýldur í magann,“ segir Vigdís og biðlar til fólks að hafa augu og eyru opin fyrir notuðum verkfærum, hurðarhúnum, gömlum ljósarofum með áföstum tréplatta og skærgulri Dewalt veltisög á næstu dögum. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni Lífið samstarf Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Lífið samstarf Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Fleiri fréttir Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Sjá meira