Högni semur tónlistina við Hróa hött 8. september 2011 11:00 Högni Egilsson semur tónlistina við leikritið Hróa hött sem verður frumsýnt í Royal Shakespeare Theatre 1. desember. Fréttablaðið/Stefán „
Þetta verður mjög spennandi. Þetta er eitthvað sem ég hef ekki gert áður, ekki á erlendri grundu alla vega,“ segir tónlistarmaðurinn Högni Egilsson. Hann hefur verið fenginn til að semja tónlistina við verkið Hrói höttur sem leikhópurinn Vesturport frumsýnir í Konunglega Shakespeare-leikhúsinu í Stratford-upon-Avon hinn 1. desember. Hann hefur áður samið tónlist við Shakespeare-verkið Ofviðrið sem var sýnt í Borgarleikhúsinu en núna er hann á leiðinni í sjálft Shakespeare-leikhúsið. Högni er með mörg verkefni í gangi um þessar mundir. Hann er nýkominn heim frá Mílanó þar sem hann söng með Gus Gus og er á leiðinni í tónleikaferð með sveitinni í október. Einnig er hann á fullu með hljómsveitinni Hjaltalín og er að vinna sína fyrstu sólóplötu sem hann gerir í kjölfar sólótónleika sinna á Listahátíð í Reykjavík fyrr á árinu. „Ég þurfti að finna út úr því hvort þetta myndi ganga tímalega því haustið er svolítið bókað,“ segir Högni, sem fékk símtal frá Gísla Erni Garðarssyni, leikstjóra Hróa hattar, um að taka að sér að semja tónlistina. Högni verður búsettur í London í nóvember og desember vegna leiksýningarinnar. Aðspurður hvort hann hafi horft á margar Hróa hattar-kvikmyndir til að koma sér í réttu stemninguna segist hann bara vera búinn að lesa handrit leikritsins. „Reyndar hefur Robin Hood: Men In Tights alltaf verið í uppáhaldi hjá mér, þannig að þetta passar ágætlega við mig.“ - fb
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira