Stefnan verður sett á Eurovision í Baku 7. september 2011 14:30 Eyrún Ellý (t.h) ásamt vinkonu sinni Hildi Tryggvadóttur, en þær eru meðal stofnenda fyrsta íslenska Eurovision-aðdáendaklúbbsins. Fréttablaðið/Vilhelm „
Þetta er tiltölulega nýskeð, stofnfundurinn var í ágúst," segir Eyrún Ellý Valsdóttir, íslenskufræðingur og formaður fyrsta íslenska opinbera Eurovision-aðdáendaklúbbsins, FÁSES. Klúbburinn verður hluti af OGAE sem eru stærstu samtök aðdáenda Eurovision í heiminum. Eyrún Ellý ásamt fimm öðrum stofnuðu klúbbinn til að gera íslenskum Eurovision-aðdáendum kleift að vera í sambandi við aðra Eurovision-aðdáendur, hafa gott aðgengi að miðum á keppnina og geta fylgst með hvað aðrir Eurovision-aðdáendur eru að hugsa og spá. „Og styðja við bakið á RÚV þegar undankeppnin byrjar, að skapa smá stemningu fyrir henni. Það hefur oft verið mjög stór þáttur í starfi erlendu aðdáendaklúbbanna að ná upp stemningu í kringum landskeppnirnar." Undirbúningur fyrir formlegan kynningarfund stendur nú yfir en Eyrún segist gera ráð fyrir því að hann verði í lok þessa mánaðar á skemmtistaðnum Barböru. Hún bætir því jafnframt við að klúbburinn setji að sjálfsögðu stefnuna á að fara til Bakú í Aserbaídsjan þar sem keppnin verður næst. Eyrún hefur alltaf haft mikinn áhuga á keppninni og var með Eurovision-blogg ásamt vinkonu sinni, Hildi Tryggvadóttur. Hún fór jafnframt á keppnina í Osló og þar sagðist hún einmitt hafa fyrst orðið þess vör hversu mikilvægt það er fyrir sanna Eurovision-aðdáendur að vera í opinberum klúbbi. „Ef maður er ekki með svona félagsskírteini er maður hálfútilokaður en um leið og þú færð passann opnast þér næstum allar dyr," útskýrir Eyrún.- fgg
Mest lesið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir Hver er Endakallinn frá Ibiza? Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Stutt í að uppselt verði í heilt og hálft Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Ástralskur hommasirkus skemmtir börnum og fullorðnum í Tjarnarbíói Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Walking Dead-leikkona látin Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Gekk hringinn í kringum landið fyrir vannærð börn í Afríku Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Terry Reid látinn Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum „Mig langar ekki lengur að deyja“ Loni Anderson er látin „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Calvin Harris orðinn faðir Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Sjá meira