Dóra Jóhanns umvafin fyndnum strákum 5. september 2011 08:00 Dóra Jóhannsdóttir er eina stelpan í væntanlegum sjónvarpsþáttum Mið Ísland-hópsins. Hér er hún ásamt Bergi Ebba, Dóra DNA, Jóhanni Alfreð og Ara Eldjárn á tökustað. „
Þeir eru voða tillitsamir og góðir við mig, koma fram við mig eins og drottningu,“ segir Dóra Jóhannsdóttir, leikkona úr förðunarstólnum en hún er eina stúlkan í væntanlegum sjónvarpsþætti Mið Íslands-hópsins. Tökur standa yfir þessa dagana og fullyrðir Dóra að það sé stanslaust stuð á tökustað. „Þetta eru náttúrulega alveg sjúklega fyndnir og ljúfir strákar. Það þarf sko ekki að draga mig í vinnuna á morgnana og ég vil helst ekki vera í fríi, það er svo gaman,“ segir Dóra og bætir við að hana hafi langað til að vera í þáttunum um leið og hún frétti að þeir væru í bígerð. Hún og Ari Eldjárn eru skólasystkini úr Menntaskólanum í Reykjavík en þeim Bergi Ebba, Dóra DNA og Jóhanni Alfreð var hún að kynnast fyrst núna. „Um leið og ég frétti að verið væri að skrifa handritið að þessum þáttum fór verkefnið efst á óskalistann. Ég er því mjög glöð að fá að vera með,“ segir Dóra en nóg er að gera hjá henni þessa dagana því hún er nýbyrjuð að sýna aftur leikritið Verði þér að góðu ásamt leihópnum Ég og vinir mínir. Sambýlismaður hennar og barnsfaðir, leikarinn Jörundur Ragnarsson, er nýkominn úr tökum á Heimsenda og er því vinnuálaginu bróðurlega skipt á heimilinu. „Já, við skiptum þessu á milli okkar en við leikum reyndar saman í leikritinu Gyllti drekinn í Borgarleikhúsinu í nóvember. Þá getum við loksins borið saman bækur okkar.“ -áp
Mest lesið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira