Má ekki neita að staðfesta lög um fjármál 25. júní 2011 08:30 Stjórnlagaráð ræddi tillögur fyrir áfangaskjal um breytingar á stjórnarskránni á löngum fundi sínum í gær. Mynd/GVA
Forsetinn mætti ekki synja staðfestingar fjárlögum, skattalögum og lögum sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum, samkvæmt annarri af tveimur tillögum Stjórnlagaráðs um málskotsrétt forsetans. B-nefnd ráðsins lagði meðal annars fram tvær tillögur um málskotsréttinn á fundi ráðsins í gær. Samkvæmt fyrri tillögunni heldur 26. grein stjórnarskrárinnar, sú sem kveður á um málskotsréttinn, að mestu gildi sínu. Forsetinn heldur sjálfstæðum málskotsrétti en ekki í öllum málum. Þannig er gert ráð fyrir því að heimild til synjunar á staðfestingu laga eigi ekki við um „fjárlög, fjáraukalög og lög um skattamálefni, lög um ríkisborgararétt og lög sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum“. Í tillögunni fær forsetinn viku frest frá því að hann fær frumvarp í hendurnar til þess að ákveða hvort hann hyggst synja lögum eða staðfesta þau. Ákvörðun sína á forsetinn að tilkynna forseta Alþingis með rökstuðningi. Þótt hann staðfesti þau ekki verða þau að lögum en setja þarf þau í þjóðaratkvæðagreiðslu innan þriggja mánaða. Hin tillagan gerir ráð fyrir því að í stað þess að forseti geti vísað lögum í þjóðaratkvæðagreiðslu geti hann innan viku frá móttöku ákveðið að senda þau á ný til Alþingis, með rökstuddu áliti sínu. Á Alþingi verði lögin afgreidd á ný við eina umræðu. Ef þingið staðfestir lögin á ný fá þau gildi án staðfestingar forsetans. Fulltrúar í Stjórnlagaráði höfðu skiptar skoðanir á tillögunum við umfjöllun í gær. Dögg Harðardóttir stakk til að mynda upp á því að báðir valkostirnir yrðu sameinaðir þannig að ef forseti neitaði að skrifa undir lög færu þau til þingsins, sem gæti breytt þeim og sent aftur til forseta. Ef þingið vildi ekki breyta þeim færu lögin í þjóðaratkvæðagreiðslu. Allar þrjár nefndir Stjórnlagaráðs lögðu fram tillögur í áfangaskjal um breytingar á stjórnarskránni á fundinum í gær, ýmist til kynningar eða afgreiðslu. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Sjá meira