Flugfarþegar hvattir til að kanna rétt sinn 24. júní 2011 07:00 Neytendasamtökin benda fólki á að leita réttar síns verði það fyrir tjóni eða óþægindum vegna tafa á flugi. Fréttablaðið/Teitur
Flugfarþegar sem lenda í óþægindum vegna tafa á flugferðum gætu átt margs konar rétt gagnvart flugfélögunum, að því er Neytendasamtökin segja. Sem dæmi höfðu ung hjón samband við Fréttablaðið og sögðu farir sínar ekki sléttar. Vegna fjögurra klukkustunda tafar á flugi Iceland Express frá Keflavík til London fyrr í mánuðinum misstu þau af flugi með Easyjet til Marokkó þar sem þau hugðust dvelja í vikutíma. Þau þurftu því að koma sér á áfangastað með öðrum leiðum með tilheyrandi kostnaði og ónæði. Þá voru þau óánægð með svör sem þau fengu frá skrifstofu Iceland Express, enda var þeim tjáð að fyrirtækið tæki ekki ábyrgð á tengiflugi sem ekki væri á þess vegum. Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, segir í samtali við Fréttablaðið að fyrirtækið selji ferðir með „point-to-point“- fyrirkomulagi sem snúi að einstökum ferðum, en ekki tengiflugi nema það sé með vélum Iceland Express. „Við reynum hins vegar í flestum tilfellum að hjálpa eins og hægt er ef fólk lendir í ógöngum.“ Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur Neytendasamtakanna, segir sjálfsagt að flugfarþegar sem telji á sér brotið snúi sér til viðeigandi aðila til þess að kanna rétt sinn. Þessi mál geti þó verið flókin. „Almennt talað geta farþegar átt margs konar rétt, ýmist á grundvelli reglugerðar um réttindi flugfarþega eða laga um loftferðir, og það er um að gera að tala við okkur eða flugmálastjórn eða jafnvel leita til úrskurðarnefndar í ferðamálum til að kanna málið.“- þj
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Sjá meira