Snjóvarnargirðing ver kálgarð fyrir kanínum 18. júní 2011 13:00 Kanínurnar valda skemmdum á görðum og trjágróðri eins og sést á þessari mynd. Fréttablaðið/Pjetur
Arnar Tómasson Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stendur í sumar fyrir könnun á kanínustofni borgarinnar. Er vonast til þess að í haust liggi fyrir nægar upplýsingar til að skipuleggja aðgerðir til að stemma stigu við fjölgun og útbreiðslu stofnsins. Villtum kanínum hefur fjölgað mikið undanfarin ár og ekki eru allir sáttir við tilvist þeirra. Arnar Tómasson á matjurtagarð í Elliðaárdal og segir kanínurnar valda stórskaða á svæðinu. „Það gildir bæði um matjurtagarða og gróður almennt þar sem þær naga börk af trjám á útivistarsvæðum. Við höfum til dæmis þurft að girða í kringum okkar garð með snjóvarnargirðingu til að fá frið fyrir kanínum.“ Arnar tekur fram að hann hafi ekkert á móti kanínum sem gæludýrum ef þeim sé haldið innan heimila eða í heimilisgörðum. „Þær eru voða fallegar en eiga ekki heima í íslenskri náttúru. Þetta er verulegt vandamál og mér finnst synd að Reykjavíkurborg skuli ekki hafa tekið á þessu máli.“ Árný Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins, staðfesti í samtali við Fréttablaðið að kvartanir hefðu borist og málið sé komið á dagskrá borgaryfirvalda. „Heilbrigðisnefnd tók þetta mál fyrir á síðasta fundi til að vekja það aftur til umræðu, en það var talsvert til umfjöllunar í fyrra. Samkvæmt lögum eru kanínur búfé og lausaganga þeirra því óheimil þótt þær megi halda innan girðinga eða í búrum. Borgin hefur hins vegar ekki heimildir til að veiða kanínur nema með undanþágu frá umhverfisráðuneyti.“ Árný bætir því við að út frá náttúruverndarsjónarmiðum telji sumir kanínur aðskotadýr en aðrir líti svo á að dýrin séu komin til að vera í íslenskri náttúru. Þær valdi hins vegar ýmsum skaða, til dæmis á gróðri í borgarlandinu og í görðum fólks, auk þess sem þær valdi usla í fuglalífi og varpi og geti valdið hættu í umferðinni. Málið sé því flókið en engu að síður þurfi að móta vel ígrundaða stefnu í samráði við fagfólk. „Umhverfis- og samgöngusvið er þess vegna að ráða starfsmann til að gera úttekt á stofninum í borgarlandinu í sumar og vinna skýrslu um málið. Þannig verðum við með betri forsendur til að marka okkur stefnu í haust og svo vinnum við út frá því,“ segir Árný. Arnar leggur hins vegar áherslu á að málið þoli ekki mikla bið. „Við erum að basla við að rækta upp landið okkar, en mér er spurn af hverju við erum að leggja það á okkur ef við tökum svo ekki á meindýrum sem skemma fyrir okkur.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Erlent Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Innlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent VG og Sanna sameina krafta sína Innlent Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Erlent Fleiri fréttir VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Borgarstjóri fór með rangt mál Sjá meira