Segir RÚV njóta óréttláts forskots 17. júní 2011 08:15 Uppfæra þarf núverandi dreifikerfi RÚV eigi það að geta dreift stafrænum útsendingum eins og stefnt er á að gera frá og með 2013. Mynd/GVA
Ari Edwald, forstjóri 365, segir samkeppnisstöðu einkareknu sjónvarpsstöðvanna skakka á meðan Ríkissjónvarpinu er dreift frítt um dreifikerfi Símans og Vodafone. „Auðvitað ætti RÚV að eiga aðild að þessum dreifikerfum og taka þátt í þessum kostnaði. Það gefur augaleið að það er erfitt fyrir einkareknu sjónvarpsfyrirtækin að við séum að greiða hundruð milljóna króna á ári fyrir dreifingu á sjónvarpsmerkjum en þau kjósi að hafa RÚV þar sem farþega frítt. Ég held að það geti ekki verið fyrirkomulag til framtíðar,“ segir Ari Edwald. RÚV hefur hingað til notað eigið dreifikerfi, samhliða aðgangi að dreifikerfum Símans og Vodafone, til að dreifa sjónvarpsútsendingum sínum. Í lok næsta árs verður hliðrænum sjónvarpsútsendingum hins vegar alfarið hætt, gangi áætlanir eftir. Í kjölfarið mun RÚV annað hvort þurfa að uppfæra eigið dreifikerfi með tilheyrandi kostnaði eða þá reiða sig alfarið á dreifikerfi Símans og Vodafone. Kristján Benediktsson, starfsmaður við dreifikerfi RÚV, sagði enn ekki ákveðið hvernig þeim málum yrði háttað í samtali við Fréttablaðið í gær. Ari telur mikilvægt að þessi skekkja í samkeppnisumhverfi sjónvarpsstöðvanna verði leiðrétt þegar umbreytingin verður. „Þetta einfaldlega vegur að samkeppnisgrundvellinum í atvinnugreininni,“ segir Ari.- mþl
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira