Hátíðarsamkoma á Hrafnseyri við Arnarfjörð 16. júní 2011 06:30 Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað á Hrafnseyri í sumar, nýr inngangur var reistur og húsið endurnýjað og betrumbætt.
Umfangsmiklum endurbótum á Hrafnseyri við Arnarfjörð er nú að ljúka, en í þær var ráðist í tilefni af 200 ára afmælisári Jóns Sigurðssonar, sem fæddist á Hrafnseyri 17. júní 1811. Af því tilefni verður blásið til hátíðarsamkomu þar vestra á morgun og opnuð sýning um Jón. Húsið á Hrafnseyri var byggt um 1960 sem prestsetur og skóli. Við úttekt á húsinu kom í ljós að það þarfnaðist verulegs viðhalds við og endurnýja þurfti raflagnir, töflu, frárennsli, lagnir og rotþró. Húsið uppfyllti heldur ekki skilyrði um aðgengi hreyfihamlaðra, brunahönnun og fleira. Ákveðið var að taka neðri hæðina undir sýningu og flytja íbúð staðarhaldara upp á efri hæð. Nýr inngangur var settur á miðja framhlið hússins og veröndinni undir svölunum lokað með gleri. Á morgun verður opnuð nýstárleg sýning um Jón að Hrafnseyri sem hefur yfirskriftina „Líf í þágu þjóðar – Jón Sigurðsson 1811-1879.“ Hún er sett fram á 90 m löngum, gegnsæjum vegg úr plexigleri í textum og myndum, margmiðlun, munum og hljóðsetningum. Í tilefni afmælisársins verður ókeypis á sýninguna í allt sumar.- kóp
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira