Útrunnir samningar upp á 33 milljarða 16. júní 2011 08:00 Samningar ríkisins við Versló voru endurnýjaðir árið 2007, en þeir hafa ekki verið undirritaðir þótt stjórnendur skólans hafi kallað eftir því.fréttablaðið/gva
Meira en helmingur þjónustusamninga mennta- og menningarmálaráðuneytisins eru útrunnir, eða 26 af 44. Tæp 30 prósent allra þjónustusamninga ríkisins eru útrunnir. Kemur þetta fram í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar á samningum ríkisins. Samkvæmt Fjárlagafrumvarpinu 2011 nema skuldbindingar ríkisins vegna útrunninna þjónustusamninga alls um 33 milljörðum króna á tímabilinu 2011 til 2014. Það eru rúm 20 prósent skuldbindinga ríkisins vegna slíkra samninga. „Ríkisendurskoðun telur óviðunandi að unnið sé árum saman samkvæmt útrunnum rekstrar- og þjónustusamningum. Mikilvægt er að þeir verði endurnýjaðir sem fyrst,“ segir í tilkynningu frá Ríkisendurskoðun. Sveinn Arason ríkisendurskoðandi segir að það ætti að vera undantekning að verið sé að greiða samkvæmt samningum sem séu útrunnir. „Menn geta verið sammála um að vinna eftir útrunnum samningum og í flestum tilvikum er það þannig,“ segir Sveinn. „En við erum að horfa til þess að menn hefðu átt að vera vakandi og halda þessu í réttu horfi.“ Þau ráðuneyti sem vinna samkvæmt útrunnum samningum eru: mennta- og menningarmálaráðuneyti, utanríkisráðuneyti, velferðarráðuneyti og innanríkisráðuneyti. Alls eru þetta 33 samningar af þeim 116 samningum sem Ríkisendurskoðun fór yfir. Flestir samningar runnu út árið 2010 en allmörg dæmi eru um samninga sem giltu til 2005 og til 2009 og einn sem gilti fram á mitt ár 2001, samningur við Hússtjórnarskólann í Reykjavík. Þjónustusamningur menntamálaráðuneytis við Verslunarskóla Íslands rann út í lok árs 2005. Ingi Ólafsson skólastjóri segir þó samninginn hafa verið endurnýjaðan árið 2007 og þá hafi verið gengið frá öllum formsatriðum samningsins, að því undanskildu að undirrita hann. „Samningurinn var allur endurunninn, það var gengið frá öllum formsatriðum og allir voru sammála um hann. En af einhverjum ástæðum fórst alltaf fyrir að undirrita hann,“ segir Ingi og bætir við að stjórnendur skólans hafi þó kallað eftir því við ráðuneytið. Unnið hefur verið samkvæmt þeim samningi síðan hann var gerður árið 2007, en samkvæmt fjárlögum fær Verslunarskólinn 858,5 milljónir á ári. „Samstarf okkar við ráðuneytið hefur alltaf verið mjög gott þannig að við vorum ekki að missa svefn yfir þessu,“ segir Ingi. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Innlent Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Innlent Elín Hall er fjallkonan í ár Innlent Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Erlent Skopmyndateiknari skotinn til bana Erlent Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Innlent Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Innlent Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Innlent Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Erlent Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Innlent Fleiri fréttir Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Kölluð á vettvang vegna rifrildis þar sem annar tók upp hníf Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Ræða Höllu: Styrkleikar Íslendinga, samtakamáttur og skoðanaskipti Elín Hall er fjallkonan í ár Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun „Hún glímir ekki við geðræna erfiðleika“ Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Símarnir í frí í skólum Reykjavíkur frá haustinu Hvalveiðiundirbúningur vonbrigði en styðja ekki aðgerðir Watson Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Sjá meira