Fréttaskýring: Börnin hvött til að segja frá 14. júní 2011 21:00 Margrét Héðinsdóttir með púðana sem börn nota til að tjá tilfinningar í forvarnaverkefninu Líkaminn minn.Fréttablaðið/Valli
Hvernig er opinberum forvörnum við kynferðisofbeldi gegn börnum háttað? Í nýútkominni skýrslu Unicef um stöðu barna á Íslandi var orðum vikið að kynferðisofbeldi gegn börnum. Í skýrslunni segir meðal annars að í þessum málaflokki sé ekkert formlegt forvarnastarf skipulagt af opinberum aðilum, heldur sé það á forræði ýmissa félagasamtaka. Blátt áfram og Stígamót eru sérstaklega nefnd í því tilliti. Margrét Héðinsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Þróunarstofu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir það hins vegar ekki rétt. Öll börn í 6. bekk grunnskóla fái kynþroskafræðslu og heilsugæslan hafi um árabil staðið fyrir fræðslu fyrir foreldra fjögurra ára barna um kynferðislegt ofbeldi. „Nú erum við einnig að vinna að því að efla þessa fræðslu og stefnum að því að ljúka því starfi næsta vetur,“ bætir Margrét við. Heilsugæslan hóf í janúar síðastliðnum forvarnarverkefnið Líkaminn minn, fyrir nemendur í fyrsta bekk grunnskóla landsins. „Tilgangur fræðslunnar er að upplýsa börnin um ofbeldi og hvetja þau til að segja frá, en það er ekki okkar hlutverk að gerast meðferðaraðilar eða yfirheyra börnin um einstök mál,“ segir Margrét. Fræðslan fer fram með þeim hætti að tveir hjúkrunarfræðingar vinna með fimm til sjö börnum í einu. „Við skoðum saman bókina Þetta er líkaminn minn, sem öll fjögurra ára börn fá frá Barnaheillum, og lesum svo dæmisögu. Þar nota börnin sértilbúna púða til að tjá ákveðanar tilfinningar sem koma fram í sögunni.“ Lykilmarkmið með verkefninu er að gera börnunum ljóst að þau eigi sinn líkama sjálf og misnotkun sé alltaf röng og ekki þeirra sök. Þau megi segja nei og eigi að segja frá ef þau verða fyrir óþægilegri reynslu. Verkefnið á sér átta ára forsögu og segir Margrét að það hafi mælst afar vel fyrir jafnt hjá fagfólki sem foreldrum og börnum. Alls hafi nú 120 skólahjúkrunarfræðingar frá skólum um allt land sótt námskeið hjá heilsugæslunni vegna þess. „Við höfum fengið afar góðar móttökur og erum mjög spennt fyrir framhaldinu. Ég veit meðal annars til þess að í mörgum skólum hafa hjúkrunarfræðingar farið með efnið í yngstu þrjá bekki grunnskóla. Svo hef ég líka fengið fyrirspurnir um hvort hægt sé að nota efnið í leikskólum. Þannig að fólk sér tvímælalaust kosti efnisins.“ Margrét segist viss um að verkefnið Líkaminn minn verði héðan í frá að föstum liði í heilbrigðisfræðslu í öllum bekkjum grunnskóla.thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Sjá meira