Stöðva 9 milljarða til íþrótta 6. maí 2011 07:00 Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs segir framkvæmdir á vegum borgarinnar töluverðar þótt framlög til íþróttamannvirkja hafi að stærstum hluta verið sett á ís. Fréttablaðið/Stefán
Með samþykkt borgarráðs á viðaukasamningi við Knattspyrnufélagið Fram hefur borgin nú samið um frestun á alls 9.390 milljóna virði af framkvæmdum sem hún hafði lofað að greiða fyrir fimm íþróttafélög. Eftir að borgin endursamdi við félögin fimm standa eftir framkvæmdir fyrir 1.038 milljónir af fyrri loforðum frá árunum 2006 til 2008 um 10.428 milljónir króna. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að auk framlags til framkvæmda hafi verkefnin falið í sér nær milljarð króna í árlegum rekstri að öllu meðtöldu. „Þessir samningar fóru langt fram úr því sem borgin gæti ráðið við, jafnvel þótt hér hefði verið bullandi góðæri út í eitt. Jafnframt er umhugsunarefni að sumir samninganna voru lagðir fram án þess að heildarkostnaður eða sú skuldbinding sem í þeim fælist lægi fyrir, þannig að tölurnar sem fylgdu sögðu aðeins hluta sögunnar. Af þessu öllu þurfum við sannarlega að læra,“ segir Dagur. Allir fulltrúar í borgarráði nema fulltrúi VG greiddu atkvæði með samningum við Fram í gær. Önnur félög sem málið snertir eru Fjölnir, Fylkir, ÍR og Golfklúbbur Reykjavíkur. Fjölnir fékk á árinu 2007 samning um 3.200 milljónir króna. Samið var um það á árinu 2009 að fresta eða hætta við framkvæmdir fyrir 2.900 milljónir af upphæðinni. Fram fékk fyrirheit um 3.367 milljónir á árinu 2008 en með samningnum sem fyrr er nefndur er 2.859 milljónum af því frestað. Á árinu 2006 var Fylki lofað 1.550 milljónum en fallið var frá því með samningi í fyrra. Golfklúbbur Reykjavíkur fékk samning um 311 milljónir á árinu 2006 en í fyrra var skorin 81 milljón af þeirri upphæð. Þá fékk ÍR fyrirheit á árinu 2006 um 2.000 milljónir. Þeim framkvæmdum er öllum frestað. „Þetta er mjög mikilvægt fyrir borgina vegna fjárhagsstöðu hennar,“ segir formaður borgarráðs. „En þetta sýnir líka að íþróttafélögin í Reykjavík eru ekki aðeins metnaðarfull heldur líka ábyrg og raunsæ. Fyrir það erum við þakklát og getum raunar verið stolt.“- gar
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Sjá meira