Laddi leikur galdrakarlinn í Oz 28. apríl 2011 12:00 Samlestur var á Galdrakarlinum í Oz í Borgarleikhúsinu í gær. Fréttablaðið/Anton „
Mér líst bara vel á þetta enda er þetta heljarinnar stór sýning,“ segir Þórhallur Sigurðsson, Laddi. Hann leikur galdrakarlinn í Oz í uppfærslu Borgarleikhússins sem frumsýnd verður í september á þessu ári. Bergur Ingólfsson leikstýrir sýningunni en það er Lára Jóhanna Jónsdóttir sem leikur Dóróteu. Alls koma 36 krakkar og atvinnuleikarar að sýningunni en hátt í fjögur þúsund börn mættu í prufur fyrr í vetur. Sérstakar persónur hafa löngum loðað við Ladda og þegar hann stígur á fjalirnar verða sérkennilegir karekterar oftast fyrir valinu. Hann hefur til að mynda leikið þjófaforingjann Fagin í Oliver Twist, Skrögg í Jólasögu Dickens og svo talaði hann auðvitað fyrir annan galdrakarl, Kjartan að nafni, sem lagði Strumpana í einelti. „Ég kann vel við þessar persónur og raunar er draumahlutverkið mitt að leika illmenni í kvikmynd. Ég hef rætt þetta við ansi marga en það hefur bara enginn hlustað.“ Laddi á góðar minningar úr Borgarleikhúsinu en yfirlitssýningin Laddi 6tugur var sýnd fyrir fullu húsi í tvö ár þar. „Ég gleymdi hins vegar fjörutíu ára leikafmælinu sem ég átti í fyrra. Ég verð bara að halda þeim mun veglegar upp á fimmtugsafmælið.“- fgg
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira