Draumkennt augnaráð kvenna 18. apríl 2011 21:30 Ágústa Kristjánsdóttir segir snyrtifræðinga njóta þess að lengja augnhár kvenna því árangurinn sjáist strax og notalegt sé að dunda sér við verkið. „
Eðlileg gerviaugnhár eru kostur sem æ fleiri konur kjósa fyrir brúðkaup, ferðalög og lífið sjálft, því þannig eru þær alltaf fínar og með sláandi flottan augnsvip, án fyrirhafnar og þess að taka nokkurn tímann um maskara," segir Ágústa Kristjánsdóttir snyrtifræðingur og eigandi Snyrtistofu Ágústu í Hafnarstræti. Þar er heitasta fegrunarmeðferðin nú stök, álímd gerviaugnhár sem gerir konur íðilfagrar með draumkenndan augnsvip við öll tækifæri, allan sólarhringinn.Hér má sjá fyrirsætuna áður en fölsku augnhárin voru sett á.„Það er útilokað að koma auga á að augnhárin séu óekta því hvert hár er límt ofan á náttúrulegt augnhár konunnar, þétt upp við augnlokin, og útkoman gullfalleg, uppbrett og þétt augnháralína," segir Ágústa sem tekur á móti konum á öllum aldri í augnháralengingu, en hægt er að velja úr mismunandi þykktum og lengdum. „Augnhárin má hafa árið um kring en þá þarf að koma í uppfyllingu á eins og hálfs mánaðar fresti sem er líftími náttúrulegra augnhára sem losna eitt af öðru í eðlilegum vaxtarhring augnhársins," segir Ágústa, en gerviaugnhárin eru litekta og því óþarfi að mála þau, sem sparar konum tíma, fyrirhöfn og snyrtivörukaup.Endanleg útkoma er stórkostleg og augnhárin þykk, löng og fagurlöguð, en verkið tekur alls um tvo tíma. Fréttablaðið/Stefán„Munurinn er mikill og margar okkar viðskiptavina hafa skartað augnháralengingum í nokkur ár. Þeim þykir notalegt að koma í meðferðina sem tekur um tvo tíma, því nákvæmnisvinnan er mikil en á móti kemur að okkur snyrtifræðingum þykir vinnan skemmtileg og svipuð því að hekla eða prjóna á meðan viðskiptavinurinn liggur undir hlýju teppi í algerri slökun," segir Ágústa. Öll efni til augnháralenginga hjá Snyrtistofu Ágústu koma frá Lash Perfect og eru ofnæmisprófuð og í hæsta gæðaflokki. thordis@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira