Ísdrottningin í viðræðum við Playboy í Þýskalandi 19. febrúar 2011 08:00 Ásdís sat fyrir á forsíðu Playboy í Búlgaríu í fyrra og ætlar að taka sinn tíma í að íhuga tilboð þýska blaðsins. „
Þetta er alveg svakalegt tækifæri. Þetta er eitt stærsta blaðið í Þýskalandi og eitt stærsta Playboy-blað heims," segir fyrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir. Playboy í Þýskalandi hafði nýlega samband við Ásdísi Rán um mögulega myndatöku fyrir blaðið. Sérútgáfur af Playboy eru gefnar út í 30 löndum utan Bandaríkjanna. Af þeim er þýska útgáfan sú elsta og hefur komið út óslitið frá árinu 1972. Blaðið er gefið út í rúmlega 250 þúsund eintökum og er með um milljón lesendur í hverjum mánuði, samkvæmt útgefandanum Hubert Burda Media. Ásdís sat fyrir á forsíðu Playboy í Búlgaríu í fyrra og ætlar að taka sinn tíma í að íhuga tilboð þýska blaðsins. „Ég er ekki búin að ákveða neitt," segir hún ákveðin. „Það tók mjög langan tíma síðast að ná mínu fram og ákveða hvað ég vildi gera, þannig að þetta er ferli sem ég þarf að fara í gegnum. Ég er ekki að fara að segja „já" á morgun og hlaupa í myndatöku. Það þarf að fara eftir mínum reglum þannig að ég verði ánægð og þeir verði ánægðir."Þýska Playboy. Ásdís er raunsæ þegar hún er spurð hvort forsíðan sé í boði í Þýskalandi eins og í Búlgaríu. „Það kemur ekki í ljós strax. Lokaákvarðanir eru teknar eftir myndatökuna," segir hún. „Ég er náttúrlega ekki stórstjarna í Þýskalandi – ég er í rauninni óþekkt hérna. Í Búlgaríu gat ég sagt að ég færi ekki í myndatöku nema ég fengi forsíðuna, hér get ekki sagt það. Þó að ég myndi bara sitja fyrir á undirfötum í litlum myndaþætti inni í blaðinu yrði ég sátt." Eins og venjulega er Ásdís Rán með mörg járn í eldinum. Hún á einnig í viðræðum við undirfatamerki í Evrópu um að vera andlit fyrirtækisins. Hún vill þó ekki gefa upp nafn fyrirtækisins fyrr en skrifað hefur verið undir samninga. Þá vinnur hún að sumarförðunarlínu Icequeen-merkis síns og hyggst bæta kjólum inn í línuna, sem hefur hingað til einskorðast við förðunarvörur. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Vala Matt selur á Ásvallagötunni Lífið Alexandra Helga lokar Míu Lífið „Ég sé að hann er löngu farinn“ Lífið Britney selur réttinn að tónlist sinni fyrir milljarða Lífið Mynduðu blátt P og minntust Patreks Freys Lífið Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Lífið Dillandi danskur Bond til bjargar blokkinni Gagnrýni Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Tónlist Varð milljón krónum ríkari í mátunarklefa á Tenerife Lífið Múmían rís í fjórða sinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Unaðsleg stemming á gotneskri forsýningu Hefur staðið eftir marin eftir mörg hundruð handabönd Mynduðu blátt P og minntust Patreks Freys Trommari The Pogues er látinn Alexandra Helga lokar Míu Vala Matt selur á Ásvallagötunni „Ég sé að hann er löngu farinn“ Frestar tónleikum heilsunnar vegna Britney selur réttinn að tónlist sinni fyrir milljarða Mínútuþögn á minningarleik um Patrek Frey Varð milljón krónum ríkari í mátunarklefa á Tenerife Yfirlýst lesbía Búið á tólf stöðum í tólf ára sambandi Fjörugt Food and fun framundan „Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Eyddi öllu út beint eftir Ofurskálina Brynja Dan og Jóhann selja slotið eftir breytingar Listapör, dansfjölskylda og rjómi senunnar á Garðinum Fram, fram, framakonur Maturinn í Ofurskálinni: Vængirnir étnir í tonnatali Glæsilegustu bollur landsins ruku út Svona var hálfleiksatriði Bad Bunny: „Guð blessi Ameríku“ Úr Eurovision í jógað: „Var ekki nógu góð við sjálfa mig eftir þetta“ Quang Le „virkilega indæll og mjög næs náungi“ Stjörnulífið: „Já, ég er klámfíkill“ Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Hamilton ætlar ekki að bruna Tímabilið sem flestir vilja gleyma Sjá meira