Þrír íþróttaþjálfarar reknir vegna kynferðisbrota í starfi 29. júlí 2011 07:00
Þrjú kynferðisbrotamál hafa komið inn á borð forsvarsmanna Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) á síðustu þremur árum. Þjálfararnir áreittu allir nemendur sína kynferðislega og var vikið úr starfi fyrir vikið. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins tengjast málin Sundfélagi Hafnarfjarðar (SH), Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar og Karatefélagi Hafnarfjarðar. Yfirsundþjálfari hjá SH, maður af erlendu bergi brotinn, var árið 2008 sakaður um að áreita nemanda sinn, 17 ára stúlku. Málið fór inn á borð lögreglu og barnaverndaryfirvalda og var manninum sagt upp störfum hjá Sundfélaginu. Þjálfari í Karatefélagi Hafnarfjarðar var sakaður um að hafa áreitt ungan nemanda sinn á grófan hátt í langan tíma þegar hún var um 14 ára. Samkvæmt upplýsingum blaðsins var maðurinn aldrei kærður. Þriðja tilfellið var hjá Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar árin 2006 og 2007. Þjálfari í félaginu áreitti á annan tug stúlkna og kvenna yfir langt tímabil. Tvær 14 ára stúlkur kærðu manninn, en málið var látið niður falla. Þjálfarinn, sem var af erlendu bergi brotinn, var að lokum rekinn úr félaginu. Ágústa Hera Birgisdóttir, formaður Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar, segir að á endanum hafi komið í ljós að maðurinn hafði áreitt fleiri stúlkur hjá öðrum félögum þar sem hann starfaði. „Það versta sem hægt er að gera varðandi svona mál er að þagga þau niður,“ segir Ágústa. „Það kom ekkert annað til greina en að láta hann fara. Það var annað hvort hann eða félagið yrði lagt niður.“ Hafin er vinna hjá forsvarsmönnum ÍBH vegna svona mála. Félagið hefur sett siðareglur og segir Elísabet Ólafsdóttir framkvæmdastjóri að vinna við reglur um meðferð kynferðisbrota innan íþróttafélaga hefjist með haustinu. „Á þessum þremur árum hafa þrjú mál komið upp, en þau er örugglega miklu fleiri sem við vitum ekki af,“ segir Elísabet og segist fagna því að þolendur stígi fram og tjái sig. „Við viljum hvetja börn og foreldra til að koma og tjá sig til að hafa hlutina í lagi. Það er allra hagur.“ - sv
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira