Heimilislæknar geta ekki lengur ávísað Rítalíni Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 28. janúar 2011 12:07 Geir Gunnlaugsson.
Heimilslæknar geta ekki lengur ávísað Rítalíni til sjúklinga eftir að verklagsreglum var breytt hjá ráðnuneytinu. Nýjar vinnureglur voru unnar af vinnuhóp á vegum velferðarráðuneytisins. Markmið þeirra er að draga úr ofnotkun og koma í veg fyrir misnotkun lyfja gegn athyglisbresti og ofvirkni. Í kjölfar reglnanna breyttust einnig lyfjaskírteini fyrir svokölluðum metýlfenídat lyfjum svo sem Rítalíni. Skírteinin verða nú eyrnamerkt þeim lækni sem sækir um þau. Með breytingunum er verið að sjá til þess að einn sérfræðingur beri ábyrgð á ávísun þessara lyfja fyrir hvern einstakling. Einnig munu nú aðeins geðlæknar, barna- og unglingageðlæknar, barnalæknar og taugalæknar sjá um frumgreiningu á ADHD og geta hafið og skipulagt meðferð í framhaldi af greiningu. Endurútgáfa skírteina stendur yfir en einstaklingar sem fengu upphaflega greiningu hjá heimilislækni munu ekki þurfa að leita endurmats hjá sérfræðingi að svo stöddu. Geir Gunnlaugsson landlæknir segir að með þessu móti sé verið að stofna til teymisvinnu milli sérfræðinga og heimilslækna sem muni til lengri tíma litið bæta þjónustu þeirra aðila sem þurfi á þessum lyfjum að halda. Nýjar vinnureglur geri embættinu kleift að fylgjast með notkuninni og geti því spornað við misnotkun. Frumgreining ADHD hjá fullorðnum mun í nýjum vinnureglum einskorðast við geðsvið Landspítala. Rætt verður nánar um rítalínmeðferðir fullorðna á læknadögum nú síðdegis.
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Innlent Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Erlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Innlent Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Innlent Fleiri fréttir Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Sjá meira