Innlent

Læknar fara fyrr í framhaldsnám og skila sér ekki aftur

Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
Niðurskurður og mannekla á spítölum fæla unglækna frá framhaldsnámi hér á landi. Læknar fara fyrr út í sérnám og vilja helst ekki taka kandidatsárið á Landspítalanum.

Síðasta áratug hefur verið mikil uppbygging í framhaldsmenntun lækna hér á landi þar sem þeir hafa getað lokið hluta eða öllu sérnámi.

„En núna á sumum sviðum hefur verið það mikill niðurskurður og stöðum fækkað og að sama skapi hefur kennsla minnkað og kennslutækifæri inn á deildum, fólk sér því ekki hag í því að byrja sitt sérnám hérna heima eins og það gerði áður," segir Sigrún Hallgrímsdóttir ritari félags almennra lækna.

Nýútskrifaðir læknar fara því fyrr erlendis í framhaldsnám en enginn hefur skilað sér úr námi síðan árið 2008. Sigrún segir afleiðingar af þessu vera margvíslegar til dæmis hafi sérfræðingar þurft að ganga vaktir almennra lækna og að vinnuálagið inni á spítölunum sé orðin mjög mikið.

„það sýnir sig í að nú til dæmis í hópi nýútskrifaðra læknar er metaðsókn í það að taka kandidatsárið annars staðar en á landsspítalanum þar sem að það sem þau hafa séð í sínu námi og heyrt í sinni vinnu hvað álagið er mikið," segir Sigrún.

Hún segir félag almennra lækna hafa áhyggjur af þessu aukna álagi á starfandi lækna.

„Þegar álagið er mikið eru auðvitað meiri líkur á mistökum og samskiptaörðugleikum og öðru sem gæti haft áhrif á gæði þjónustu þeirra," segir Sigrún að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×