„Mjög mikilvægt skref í baráttunni“ 29. janúar 2011 15:57 Auður og dóttir hennar, Hrafnhildur Thoroddsen. Hrafnhildur slasaðist alvarlega í umferðarslysi fyrir rúmum 20 árum. Mynd/Arnþór Birkisson „
Ég er fullviss um að það sé til mikil vísindaleg þekking sem er vannýtt. Þetta er því mjög mikilvægt skref í baráttunni," segir Auður Guðjónsdóttir, formaður Mænuskaðastofnunar Íslands, um samþykkt velferðarnefndar Norðurlandaráðs, en nefndin samþykkti í vikunni tillögu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs um samhæfðar upplýsingar á Norðurlöndum um mænuskaða. Tillagan fjallar um að fela nefnd sérfróðra vísindamanna og lækna að safna upplýsingum og gera yfirlit yfir norrænar og aðrar rannsóknir og meðferðir við mænuskaða, í formi skýrslu, og gera tillögur um úrbætur um rannsóknir og meðferðir á mænuskaða. Einnig var samþykkt að gera rannsókn á þátttöku fólks með mænuskaða á vinnumarkaði og að vinna að norrænni gæðaskrá um mænuskaða. Í meira en tvo áratugi, eða allt frá því að dóttir hennar þá 16 ára að aldri slasaðist mikið í bílslysi, hefur Auður lagt sitt að mörkum svo að lækning við mænuskaða finnast. „Síðan þá hefur allt lífið verið undirlagt þessari baráttu," segir Auður. Auður segist hafa skrifað Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni bréf árið 1998 um mænuskaða. „Í allan þennan tíma hef ég verið að reyna að fá einhverja alþjóðastofun til að taka á þessu máli." Um 1000 Norðurlandabúar verða fyrir mænuskaða árlega. Á síðustu áratugum hafa framfarir í meðferð við mænuskaða verið hægari en á öðrum sviðum læknavísinda. Tillagan sem velferðarnefnd Norðurlandaráðs samþykkti verður nú lögð fram til umfjöllunar á árlegu þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn í nóvember. Auður vonast til þess að tillagan verði samþykkt svo meðferð við mænuskaða taki meiri framförum en verið hefur hingað til.
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Skotárás við Álaborg Erlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Innlent Fleiri fréttir Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Sjá meira