Bond bannað að standa uppi á þaki 8. september 2011 12:30 Svona leit Bond út þar sem við sáum hann síðast, undir lok Quantum of Solace.
23. Bond-myndin virðist loksins vera farin að taka á sig mynd eftir að hafa verið fórnarlamb kjaftasagna um hugsanlegt brotthvarf leyniþjónustumansins af hvíta tjaldinu. Myndin verður að einhverju leyti tekin upp á Indlandi en þarlend yfirvöld hafa þegar sett sig í samband við framleiðendur og óskað eftir því að einu áhættuatriði verði breytt. Bond, sem verður leikinn af Daniel Craig eins og í tveimur síðustu myndum, á að þeysast eftir lest, stökkva um borð og klifra upp á þak. Indversk lestayfirvöld hafa nefnilega skorið upp herör gegn því að fólk sé uppi á þökum lesta og vilja því að þessu einstaka atriði verði breytt nema Bond verði einn uppi á þaki. Sem yrði að teljast fremur asnalegt. Samkvæmt vefsíðunni Cinemablend.com hafa leikstjórinn Sam Mendes og félagar þegar samþykkt þessar kröfu og ætla að breyta atriðinu lítillega. Hluti af framleiðslu Bond-myndar er orðrómurinn um hver fari með hlutverk illmennisins í myndunum og hvaða stúlkur hreppi Bondstúlku-hlutverkið eftirsótta. Naomie Harris hefur verið sterklega orðuð við hlutverk ungfrú Moneypenny og þá er talið að baráttan um þrjótinn standi milli Javier Bardem og Ralph Fiennes.
Mest lesið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni Lífið samstarf Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Lífið samstarf Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Fleiri fréttir Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Sjá meira