Ragnhildur Steinunn treður sér í kaffiboðin elly@365.is skrifar 8. september 2011 13:49
Þáttargerðin gengur bara rosa vel. Við erum búin að taka upp alla þættina og sitjum núna sveitt við klippiborðið að vinna úr efninu. Þetta er búið að vera rosalega skemmtilegt ferli því allir einstaklingarnir í þáttunum hafa verið svo opnir og persónulegir. Ég er farin að þekkja alla fjölskyldu þeirra og mér er farið að líða eins og hálfgerðri frænku hvers og eins, treð mér í kaffiboð og svona, segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir stjórnandi þáttarins Ísþjóðin sem sýnd er í sjónvarpinu á fimmtudagskvöldum.Hittir áhugaverða Íslendinga Í þættinum í kvöld kynnumst við einni bestu frjálsíþróttakonu heims Helgu Margréti Þorsteinsdóttur. Hún er sveitastelpa í húð og hár og einn metnaðarfyllsti einstaklingur sem ég hef á ævi minni kynnst. Hún stefnir á Ólympíugullið í sjöþraut árið 2016 og æfir nú að kappi fyrir það. Ég hefði aldrei trúað því hversu miklar fórnir fylgja því að ná svona langt en Helga Margrét leggur allt undir til þess að ná takmörkum sínum. Ég dáist af henni, segir Ragnhildur.Fjórir vinnudagar á bak við einn þátt Það tekur okkur að meðaltali fjóra daga að taka upp hvern þátt. Eiríkur Ingi Böðvarsson pródusent er kominn með áskrift að vöðvabólgu því ég dreg hann út um allar trissur til þess að taka upp á sem flestum stöðum. Maður vill auðvitað reyna að veita áhorfandum sem raunverulegasta sýn í líf viðkomandi, útskýrir hún spurð út í vinnuna á bak við þættina.Ánægð með viðtökurnar Í þættinum hennar Helgu Margrétar fórum við til dæmi í Hrútafjörð í sveitina til mömmu hennar og pabba og svo flugum við til Svíþjóðar og fylgdum Helgu eftir þegar hún fór þangað til þess að æfa. Við erum alveg í skýjunum með góðar viðtökur og gott áhorf og vonum svo sannarlega að fólk haldi áfram að horfa, segir Ragnhildur Steinunn áður en kvatt er.
Mest lesið Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Lífið Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Lífið Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Lífið Kinký bangsar og leðurklæddir kroppar Menning Fréttatía vikunnar: Lilja, eitur og krulla Lífið Hlægileg sjálfsfróun og hryðjuverk á Wuthering Heights Gagnrýni Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Lífið Vinkonuferð til Íslands tók óvænta stefnu Lífið Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Lífið Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Lífið Fleiri fréttir Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Fréttatía vikunnar: Lilja, eitur og krulla Bleikar kollur, gellur og gaurar Einn sá efnilegasti ætlar að verða sá fyrsti inn á Ólympíuleika Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Frá einni ofurbombu til annarrar Eric Dane er látinn Þeim fjölgar sem skilja Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Nýtt verk frá Martin en samt kvarta aðdáendur Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Ekkja Hefners varar við birtingu nektarmynda úr dagbókum hans Verður alltaf meyr þegar hann hugsar um lífsbjörgina „Við löbbum ekki bara og hrösum um Esjuna“ Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sungið, saumað og sprellað á öskudaginn Sagði já og baðst í leiðinni afsökunar „Ég skal rétta þjófinum 60.000 kall og óska honum góðs dags“ Tannlæknir sem tannkrem á öskudaginn Keyptu 250 fermetra hús í Andalúsíu á fjörutíu milljónir Handtekinn fyrir að sýna typpið LaBeouf buffaði tvo og sambandið búið spil Pedro Pascal og Rafa saman á Valentínusardag „Ég er alltaf þreyttur á sjálfum mér“ Hætti að drekka og flutti til Balí Sjá meira