Íslensk matarhönnun með þeim bestu 18. nóvember 2011 15:30 Guðfinna og Brynhildur. Mynd/Arnþór
Þrjú íslensk matarhönnunarverk eru til umfjöllunar í nýrri bók sem þýska bókaforlagið Gestalten gefur út. Bókin, sem ber titilinn Delicate, New Food Culture, fjallar um matarmenningu samtímans og þar á meðal matarhönnun. Brynhildur Pálsdóttir hönnuður á hlut í þeim þremur verkefnum sem tekin eru fyrir og eru velþekkt hérlendis. „Í bókinni er tekið fyrir allt það helsta sem hefur verið á döfinni á þessu sviði matarhönnunar og það er flott hvað bókin nær að fanga verkefni víða að þannig að jú, það er mjög gaman að vera með í þessu," segir Brynhildur. Íslensku verkefnin sem gert er skil í bókinni eru sem fyrr segir þrjú. Fjallað er um skyrkonfektið frá Erpstöðum sem varð til í verkefninu Stefnumót hönnuða og bænda í vöruhönnunardeild Listaháskóla Íslands. Verkefninu var stýrt af Brynhildi, Sigríði Sigurjónsdóttur, prófessor í vöruhönnun, og Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur.Bókin Delicate fæst í Sparki við Klapparstíg.Þá er fjallað um súkkulaðieldfjöll Brynhildar sem hún vann í samvinnu við Hafliða Ragnarsson súkkulaðimeistara, sem mun á næstunni opna litla súkkulaðibúð í Aðalstræti. Einnig leirpottinn svokallaða sem er samstarfsverkefni Sigríðar Erlu Guðmundsdóttur, Brynhildar Pálsdóttur og Guðfinnu Mjallar. Hann fæst meðal annars í Kokku. Brynhildur og Guðfinna útskrifuðust sem hönnuðir árið 2004 og Brynhildur segir þær hafa þá tekið meðvitaða ákvörðun um að horfa inn í heim matarhönnunar.„Það er nærtækt fyrir okkur á Íslandi að vinna meira með matvælin. Við eigum ekki mikið af timbri eða öðru hráefni en við eigum nóg af mat og við gætum því verið að gera margt nýtt í þeim geira svo sem að þróa nýjar og áhugaverðar matvörur og farið meira í skapandi áttir en við höfum verið að gera," segir Brynhildur. Hún bætir við að nú séu fyrir hendi mörg tækifæri fyrir bændur og aðra í matvælageiranum til að vinna að slíkum verkefnum. „Þá gætu hönnuðir komið meira inn í slíka þróunarvinnu." juliam@frettabladid.is
Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Sjá meira