6,5 milljónir í söfnun 7. maí 2011 06:00 Jónas Þórir Þórisson
Alls hafa 6,5 milljónir króna verið greiddar til Hjálparstarfs kirkjunnar með valgreiðsluseðlum í heimabanka frá því að átakið um breytingar á innlendri mataraðstoð hófst fyrir um viku. Breytingunum er beint gegn biðröðunum sem tíðkast hafa við matarúthlutanir. „Söfnunin hefur gengið mjög vel á þessari einu viku. Það má kannski gera ráð fyrir að þetta gangi best fyrst eftir mánaðamót en við sendum út 120 þúsund kröfur og það hefur að vísu enn ekki komið inn stórt hlutfall af þeim,“ segir Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfsins, um verkefnið, sem mun standa í sjö mánuði til að byrja með. Breytingarnar á mataraðstoðinni eru fólgnar í því að skjólstæðingar Hjálparstarfsins sem eru með börn á framfæri fá í hendur inneignarkort í verslunum sem selja helstu nauðþurftir. Inneignarkortin, sem geyma fasta og fyrir fram ákveðna upphæð, koma í stað matarpoka sem Hjálparstarfið hefur hingað til afhent. „Einstaklingar sem ekki treysta sér til þess að standa í biðröðum einhverra hluta vegna hafa hringt til okkar og spurt um möguleika á inneignarkorti og við munum taka slíkar beiðnir til athugunar eins og allar aðrar beiðnir,“ segir Jónas Þórir. - ibs
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent Fleiri fréttir Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Sjá meira