Elín Ey böskar í Bankastrætinu 16. maí 2011 11:00 spilar í sumar Elín Ey ætlar að spila fyrir gesti og gangandi í Bankastrætinu í sumar. fréttablaðið/stefán
Tónlistarkonan Elín Ey ætlar að vera dugleg við að böska í miðbæ Reykjavíkur í sumar. Þar spilar hún á kassagítarinn sinn fyrir pening og eru bæði útlendingar og Íslendingar duglegir við að kafa ofan í vasa sína eftir aurum. „Þegar það er mikið af túristum og mjög gott veður er þetta bara fínasti peningur. Það er mjög „næs“ að fá borgað fyrir að sitja í sólinni og spila á gítar,“ segir Elín, sem er dóttir tónlistarhjónanna Ellenar Kristjánsdóttur og Eyþórs Gunnarssonar. „Ég byrjaði á þessu fyrir tveimur sumrum og er búinn að gera þetta heima og aðeins úti í New York,“ segir Elín, sem mælir þó ekki með því að böska í „Stóra eplinu“ á sumrin vegna mikils hita. Hún ætlar að spila eins oft og hún getur í sumar til að ná sér í smá pening. „Þetta er vinnan mín á sumrin og ég fer alla daga sem bjóða upp á þetta. Þetta fer ekki endilega eftir veðrinu heldur hversu líflegur bærinn er.“ Hún hefur mest haldið sig til í Bankastrætinu fyrir utan verslunina 66° norður þar sem mikið af fólki er jafnan á gangi. Elín fer aftur til New York í júní, ekki þó til að böska heldur í stutta tónleikaferð með Sóleyju Kristjánsdóttur, dóttur tónlistarmannsins KK sem böskaði einmitt á meginlandi í Evrópu á árum árum. Í New York ætla þær að spila lög Elínar, sem gaf út sína fyrstu plötu fyrir þremur árum. Ný plata er einmitt á leiðinni frá henni síðar á þessu ári. -fb
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira