Taka ákvörðun um fangelsi 26. júlí 2011 07:30 Steingrímur segir styttast í ákvörðun um hvernig fjármögnun nýs fangelsis verður háttað enda sé þörfin brýn. Mynd/Anton
Fangelsismál verða til umræðu á ríkisstjórnarfundi í dag. Gögn fyrir útboð eru á lokastigi, bæði hvað varðar byggingu og fjármögnun. Eftir er hins vegar að taka ákvörðun um hvernig fjármögnun verður háttað. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur talað fyrir því að ríkisstjórnin fjármagni bygginguna, en um það hefur ekki náðst samstaða í ríkisstjórn. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir of mikið gert úr ágreiningi um málið. „Ég held að það séu allir sammála um það í ríkisstjórn að við eðlilegar aðstæður í ríkisbúskapnum – og ef ríkið væri rekið með afgangi – væri heppilegast að ríkið stæði sjálft fyrir framkvæmdinni. Veruleikinn er þessi og þess vegna höfum við reynt að leita leiða til að koma framkvæmdum og fjárfestingu af stað, án þess þó að það geri glímuna við ríkisfjármálin erfiðari, akkúrat þessi árin þegar hún er hvað hörðust.“ Steingrímur vísar til þess að til annarra aðila hafi verið leitað við fjármögnun á nýjum Landspítala og einnig hafi verið uppi hugmyndir um fjármögnun vegaframkvæmda með sértekjum eða vegtollum. Hann segir miður að ekki hafi verið ráðist í framkvæmdina þegar betur áraði í ríkisbúskapnum, en nú styttist í ákvörðun. „Við munum ekki velta þessu máli lengi á undan okkur og höfum ekki gert. Tíminn fram á vorið fór í að undirbúa allt ef til útboðs kemur.“ - kóp
Mest lesið Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Innlent Fleiri fréttir Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu Nató, raforkukostnaður í dreifbýli og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent