Íslenskir spennuþættir á kaupstefnu í Hollywood 10. nóvember 2011 10:00 Pressa hefur þegar vakið töluverða athygli og hefur Saga Film bókað nokkra fundi með áhugasömum aðilum á The Remakes Market. „
Menn eru auðvitað að hamra járnið á meðan það er heitt," segir Hannes Pálsson hjá framleiðslufyrirtækinu Saga Film. Fyrirtækið tekur þátt í stórum endurgerðarmarkaði sem fram fer í Hollywood í næstu viku og nefnist The Remakes Market. Þar geta „lítil" fyrirtæki, eins og Saga Film, komið á framfæri verkefnum sínum sem þau telja að eigi erindi við önnur stór lönd. Saga Film hyggst kynna spennuþáttaraðirnar Svarta engla, sem sýndir voru á RÚV, og Pressu, sem sló í gegn á Stöð 2, og svo kvikmyndina Kalda slóð eftir Björn Brynjúlf Björnsson. Þessar þreifingar koma í kjölfarið á endurgerð á kvikmyndinni Reykjavik-Rotterdam, Contraband, í Hollywood en hún verður frumsýnd eftir jól. Bandaríski leikstjórinn James Mangold hefur auk þess lýst því yfir að hann vilji endurgera Borgríki eftir Ólaf Jóhannesson og þá stendur til að endurgera Næturvaktina í Noregi. Bandaríski stórleikarinn Jack Black er einnig áhugasamur um íslensku gamanþáttaröðina.Köld slóð.Norrænir spennuþættir og kvikmyndir eru aðalæðið í Bandaríkjunum um þessar mundir. Sjónvarpsþættirnir The Killing, sem er endurgerð á danska þættinum Forbrydelsen, þykja hafa heppnast einstaklega vel og segir Hannes að menn séu að leita að einhverju í þeim dúr, einhverju með ferskri og nýrri nálgun. „Við erum sjálfir búnir að senda stiklur sem hafa þegar vakið töluverða athygli," segir Hannes og tiltekur þar sérstaklega Pressu. „Efnistökin þar þykja nokkuð nýstárleg og þetta er heimur sem hefur ekki verið mikið notaður," útskýrir Hannes og bætir því við að þegar hafi verið bókaðir margir fundir með áhugasömum kaupendum.Úr sjónvarpsþáttunum Svartir englar.Sigurjón Kjartansson, sem er aðalmaðurinn á bak við Pressu, segir að hann hafi alltaf séð Pressu sem mjög endurgerðarvæna, alveg síðan þeir gerðu fyrstu seríuna. „Hún á fullt erindi þangað," segir Sigurjón og bætir því við að þetta hafi legið ansi lengi í loftinu. „Ég vissi nú reyndar ekki af þessari ráðstefnu en það er mjög ánægjulegt að hún sé á leiðinni þarna út," segir Sigurjón en nú er unnið að gerð þriðju seríunnar. „Hún mun fara aðeins meira út í netheima og hvernig þeir mæta dagblaðinu." freyrgigja@frettabladid.is
Menning Mest lesið Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður Lífið Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Lífið „Hún er í hljóðverinu núna“ Lífið Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Lífið Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Gagnrýni Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Fleiri fréttir Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Sjá meira