Jón Gnarr talar inn á Múmínálfamynd 4. febrúar 2011 10:00 Jón Gnarr er Snúður í íslensku útgáfunni af Múmínálfamyndinni. Það voru framleiðendur myndarinnar með Tom Carpelan fremstan í flokki sem óskuðu eftir því að fá Jón. fréttablaðið/Stefán „
Ég mátti velja hlutverkið sjálfur,“ segir Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur. Jón talar fyrir eina aðalpersónuna í þrívíddarteiknimyndinni Múmíndalurinn og halastjarnan sem verður frumsýnd hér á landi um helgina. „Ég fór til Finnlands fyrir nokkru og hitti þá framleiðendur myndarinnar og aðstandendur hennar. Þeir höfðu heyrt að ég hefði talað vel um Múmínálfana og Múmíndalinn og buðu mér í kjölfarið hlutverk í íslensku talsetningunni,“ segir borgarstjórinn. Jón er sjálfur Snúður, besti vinur Múmínsnáðans, sem hefur ráð undir rifi hverju. „Hann og Múmínpabbi hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér og ég vildi fyrst tala fyrir Múmínpabba en hann var bara með svo fáar línur.“ Fjöldi annarra þekktra Íslendinga talar inn á teiknimyndina en það er Sveppi sem fer með hlutverk Múmínsnáðans. „Hann stendur sig mjög vel en senuþjófurinn er Sigurjón Kjartansson, hann er stórkostlegur sem Hemúllinn.“ Þeir sem hafa lesið bækurnar um Múmínálfana vita sennilega að Hemúllinn er fremur fýlugjarn einstaklingur með allt á hornum sér. Þetta er í annað sinn sem Jón talar inn á teiknimynd. Hitt skiptið var fyrir ansi mörgum árum, þá var hann ráðgjafi Mulan í samnefndri teiknimynd frá Disney. Jón kveðst vera himinlifandi með myndina sjálfa og að nú standi til að gefa bækurnar eftir Tove Jansson aftur út. „Múmínálfarnir og lífsspeki þeirra eiga svo mikið erindi við okkur í dag.“- fgg
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Elli Egils opnar sýningu ásamt fjögurra ára dóttur sinni Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Fleiri fréttir Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Elli Egils opnar sýningu ásamt fjögurra ára dóttur sinni Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Sjá meira