Lífið

Fékk hugmynd að góðgerðarframtaki í lagi Mugisons

Sandra ætlar að nota jólafríið í að gera eins mörg hálsmen og hún getur.fréttablaðið/gva
Sandra ætlar að nota jólafríið í að gera eins mörg hálsmen og hún getur.fréttablaðið/gva
„Mig langaði bara að hjálpa til,“ segir mannfræðineminn Sandra Hrafnhildur Harðardóttir, sem hefur hafið sölu á handgerðum hálsmenum til styrktar hinum ýmsu góðgerðarsamtökum.

Hálsmenið kallar hún Vonarnisti og segir því ætlað að vera áminningu um að einhvers staðar megi alltaf finna von. Hugmyndina fékk Sandra þegar hún var að hlusta á útvarpið.

„Ég var að hlusta á nýtt lag með Mugison, Þjóðarsálina, þar sem orðið vonarneisti kemur fyrir. Ég fór strax að hugsa um þetta orð og hvaða jákvæðu þýðingu það hefði. Út frá því velti ég fyrir mér af hverju enginn hefði búið til vonarnisti, og ákvað að gera það bara sjálf.“ Hún hafði aldrei búið til skartgrip á ævinni þegar hugmyndin fæddist en lét það ekki stöðva sig. Hálsmenið er búið til úr vírkúlu með glitsteini innan í og er í síðri keðju.

Sandra er námsmaður og tilheyrir þannig efnalitlum hópi en hún segir aldrei hafa komið til greina að græða sjálf á framtakinu. „Mig langaði að styrkja samtök sem eru að hjálpa þeim sem þurfa aðstoð. Undanfarið hefur verið svo mikið í fréttum hvað margir eiga bágt, miklu meira bágt en ég, og mig langaði til að leggja mitt af mörkum.“

Sandra ákvað að tileinka hverjum samtökum einn mánuð og gefa ágóðann af sölu nistisins að fráteknum efniskostnaði til þeirra í mánaðarlok. Þannig er janúar mánuður Fjölskylduhjálpar, í febrúar styrkir hún Blátt áfram, Stígamót í mars og Rauða krossinn í apríl. Viðbrögð við framtakinu hafa verið mjög jákvæð að sögn Söndru, sem hefur á tveimur dögum fengið á annan tug pantana, og hefur fólk haft samband við hana og boðið henni hjálp sína. Hún útilokar ekki áframhald á verkefninu. „Mig langar að sjálfsögðu að halda áfram með þetta ef ég fæ góðar undirtektir og þetta gengur vel.“

Vonarnistið kostar 4.000 krónur og hægt er að leggja inn pöntun fyrir hvaða mánuð sem er á Facebook-síðu með sama nafni.- bb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.