Innlent

Ammoníakleki á Suðurnesjum

Tveimur reykköfurum í eiturefnabúningum tókst í gærkvöldi að stöðva mikinn ammoníakleka í húsnæði Slægingarþjónustu Suðurnesja í Sandgerði, og varð engum meint af lekanum. Í ljós kom að ammoníakrör hafði sprungið þannig að efnið lak út.

Vindátt var norðanstæð þannig að ekki hlutust óþægindi af efninu í bænum. 60 til 70 tonn af sæbjúgum voru i húsinu og verður metið í dag hvort þau hafa skemmst. Reynist það niðurstaðan gæti tjónið hlaupið á tugum milljóna króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×