Vigdís Finnbogadóttir verðlaunuð 19. júní 2011 18:17 Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn í dag. Mynd/Egill Bjarki.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseta Íslands, hlaut í dag verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta fyrir árið 2011. Verðlaunin hlýtur hún fyrir að efla og styrkja vináttu milli Íslands og Danmerkur sem ötull talsmaður menningarsamskipta þjóðanna. Forusta hennar í stjórn sjóðsins Den Nordatlantiske Brygge tryggði endurbyggingu „Bryggjunnar“ þar sem síðan hefur verið haldið á loft menningu Íslands í Kaupmannahöfn, líkt og það er orðað í tilkynningu. Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn í dag, kvenréttindadaginn 19. júní 2011. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns og halda á loft verkum hans og hugsjónum. Stjórn húss Jóns Sigurðssonar hefur umsjón með hátíðinni með fulltingi forseta Alþingis og forsætisnefndar. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flutti hátíðarræðu við þetta tilefni og Sólveig Pétursdóttir, formaður undirbúningsnefndar afmælis Jóns Sigurðssonar, kynnti margmiðlunarsýningu sem gerð er í tilefni 200 ára afmælisársins Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, afhenti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta, en Alþingi veitir verðlaunin í minningu starfa Jóns forseta í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns. Þessi verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála. Verðlaunin hafa áður hlotið: 2010: Søren Langvad byggingarverkfræðingur. 2009: Erik Skyum-Nielsen bókmenntafræðingur. 2008: Guðjón Friðriksson sagnfræðingur.
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Innlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu