Stjórnendur telja aðstæður í atvinnulífinu slæmar 22. júní 2011 09:51 Mest svartsýni ríkir í byggingastarfsemi, þar sem enginn trúir á betri tíð Mynd úr safni
Mikill meirihluti stjórnenda fyrirtækja telja aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar Þetta er niðurstaða könnunar Capacent meðal stærstu fyrirtækja landsins. Samkvæmt könnuninni, sem gerð var í maí og júní 2011, telja 78% stjórnenda aðstæður slæmar, 21% að þær séu hvorki góðar né slæmar en 2% að þær séu góðar. Þetta er nánast sama niðurstaða og fékkst í mars síðastliðunum þegar 79% stjórnenda töldu aðstæður slæmar. Samtök atvinnulífsins hafa samstarf við fjármálaráðuneytið og Seðlabanka Íslands um reglubundna könnun á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækja á Íslandi. Sagt er frá niðurstöðunum á vef SA. Mat stjórnenda á aðstæðum eftir 6 mánuði er töluvert lakara en verið hefur undanfarið og hefur matið ekki verið lægra síðan í desember 2009. 19% þeirra sjá fram á betri tíma eftir 6 mánuði, 31% að aðstæður verði verri en 50% telja að þær breytist ekki. Mun meiri bjartsýni ríkir á höfuðborgarsvæðinu, þar sem 21% telja aðstæður batna, en á landsbyggðinni, þar sem einungis 11% telja þær batna. Stjórnendur í fjármálastarfsemi, þjónustu, iðnaði og verslun og eru bjartsýnni en í öðrum greinum, þar sem 20-30% telja að b etri tíð sé í vændum, en mest svartsýni ríkir í byggingastarfsemi, þar sem enginn trúir á betri tíð, í samgöngum og flutningum, þar sem 5% sjá fram á betri tíð og í sjávarútvegi þar sem rúm 10% telja að ástandið batni.Fækkun starfsmanna í öllum atvinnugreinum Áformuð er fækkun starfsmanna í öllum þeim atvinnugreinum sem flokkað er eftir, en minnst fækkun er áformuð í samgöngum og þjónustu, en mesta fækkunin í byggingastarfsemi og sjávarútvegi. Ekki er mikill munur á höfuðborgarsvæði og landsbyggð hvað áform um fækkun eða fjölgun starfsmanna varðar.Sjá frétt á vef SA.
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Innlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Fleiri fréttir Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Sjá meira