Áfrýjunarnefnd staðfestir dagsektir Samkeppniseftirlitsins 22. júní 2011 15:50 Jóhannes Karl Sveinsson, formaður Áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti í dag ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að beita Seðlabankann dagsektum vegna vanrækslu á afhendingu gagna og upplýsinga um útlán banka. Nefndin hafnaði þannig þeirri málsástæðu Seðlabanka að bankinn væri bundinn sérstakri þagnarskyldu sem ekki yrði rofin nema með dómsúrskurði eða sérstöku lagaboði, og sagði í niðurstöðu sinni að í ákvæðum samkeppnislaga væri almenn heimild fyrir Samkeppniseftirlitið til að afla upplýsinga frá öðrum stjórnvöldum, hvort sem þær upplýsingar teljist almennt til trúnaðarupplýsinga eða ekki. Ákvæðið sem þessa heimild veitti væri sérákvæði gagnvart öðrum þagnarskylduákvæðum sem stjórnvöldum er almennt falið að starfa eftir. Því var einnig hafnað í úrskurðinum að Samkeppniseftirlitið hafi farið út fyrir valdheimildir sínar og ekki gætt meðalhófs við beitingu dagsektarheimilda þegar Seðlabankinn varð ekki við upplýsingabeiðnum Samkeppniseftirlitsins. Seðlabanki hafði uppi önnur mótrök við beitingu dagsektanna og var þeim öllum hafnað. Seðlabankinn fær frest til 1. júlí næstkomandi til að veita Samkeppniseftirlitinu þær upplýsingar sem um var beðið og munu dagsektir falla á ef Seðlabankinn verður ekki við beiðninni fyrir þann tíma.
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu