Hárið sett upp í Hörpunni Salóme R. Gunnarsdóttir skrifar 22. júní 2011 11:16 Hárið verður fyrsta leiksýningin sem sett er upp í Hörpunni.
Söngleikurinn Hárið, sem sló í gegn á Akureyri um páskana, verður settur upp í Hörpunni í júlí og verður þar með fyrsta leiksýningin sem sett er upp í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu. „Þetta verður hringleikjahús.“ segir Jón Gunnar Þórðarson, leikstjóri sýningarinnar. „Salurinn Norðurljós í Hörpu passar fullkomlega og munu áhorfendur sitja í hring bæði uppi og niðri. Leikhópurinn er ótrúlega spenntur enda er hljóð- og ljósbúnaður í salnum á heimsmælikvarða.“ Það er leikhópurinn Silfurtunglið sem stendur að baki sýningunni, en hann skipar úrval þjóðþekktra Íslendinga. Eyþór Ingi Gunnlaugsson mun fara með aðalhlutverkið, en auk hans munu stíga á svið evróvisionfarinn Matti Matt, Jana María Guðmundsdóttir, Pétur Örn Guðmundsson, Ívar Helgason, Erna Hrönn Ólafsdóttir og Ólöf Jara Skagfjörð. Magni Ásgeirsson, sem fór með hlutverk blökkumannsins Hud á Akureyri, mun ekki geta tekið þátt í sýningunni í Reykjavík og mun Jóhannes Haukur Jóhannesson koma í hans stað. Jón Gunnar segir mikla stemningu hafa skapast á sýningum. Margir leikhúsgestir hafi klætt sig upp í anda verksins og ófáir tekið upp á því að syngja með. Þá hafi sumir þeirra sem voru smeykir við að þenja raddböndin almennilega safnað kjarki, keypt sér annan miða á sýninguna, og sungið þá hástöfum. Jón Gunnar hvetur leikhúsgesti eindregið til að klæða sig upp og syngja með. „Mæta í fíling. Það kunna svo margir þessi lög, jafnvel án þess að fatta það.“ Hárið verður frumsýnt í Hörpunni þann 7. júlí næstkomandi og er miðasala þegar hafin.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Sjá meira