Öryggi sjúklinga á Akureyri kann að vera ógnað 22. júní 2011 11:30 Ríkisendurskoðun gagnrýnir margt í nýrri útttekt á Sjúkrahúsinu á Akureyri Mynd úr safni
Læknaskortur á Sjúkrahúsinu á Akureyri hefur þær afleiðingar að öryggi sjúklinga kann að vera ógnað. Mikilvægt er að landlæknisembættið geri úttekt á öryggi sjúklinga á sjúkrahúsinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar þar sem fjallað er um skipulag, stefnu og stjórnun Sjúkrahússins á Akureyri. Fram kemur að samkvæmt viðhorfskönnun sem Ríkisendurskoðun gerði meðal starfsmanna sjúkrahússins ríkir óánægja með ýmsa þætti í skipulagi og stjórnun þess, meðal annars með starfshætti framkvæmdastjórnar en í henni sitja fjórir æðstu stjórnendur stofnunarinnar. Tekið skal fram að auk könnunarinnar byggði úttekt Ríkisendurskoðunar meðal annars á viðtölum við fyrrverandi og núverandi starfsmenn og greiningu margvíslegra gagna. Ríkisendurskoðun leggur til að skipulag Sjúkrahússins á Akureyri verði einfaldað og framkvæmdastjórn þess styrkt. Einnig þurfi að móta nýja stefnu fyrir sjúkrahúsið og ákveða framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi. Starfsemi sjúkrahússins fer nú fram í 38 einingum og eru millistjórnendur um 50 en starfsmenn samtals um 600. Að mati Ríkisendurskoðunar er mikilvægt að fækka starfseiningum með því að sameina þær. Stofna ætti nokkur kjarnasvið og setja framkvæmdastjóra yfir hvert þeirra sem sæti jafnframt í framkvæmdastjórn sjúkarhússins. Með þessu móti telur Ríkisendurskoðun að unnt sé að styrkja framkvæmdastjórnina. Einnig sé mikilvægt að hún verði sýnilegri starfsmönnum en verið hefur og bregðist hratt við ábendingum og erindum frá þeim. Ríkisendurskoðun telur að móta þurfi nýja stefnu og framtíðarsýn fyrir sjúkrahúsið með aðgerðaáætlun og árangursmælikvörðum. Þá sé brýnt að velferðarráðneytið ákveði framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi, meðal annars með verkaskiptingu milli heilbrigðisstofnana á svæðinu. Í skýrslunni kemur fram að þegar sé hafin vinna innan sjúkrahússins við að móta nýja stefnu.Sjá skýrslu Ríkisendurskoðunar í heild sinni á PDF-formi.
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu