Nýjustu umbrot beina sjónum að stærstu hraungosunum 15. júlí 2011 20:00
Eldstöðvarnar sem sýnt hafa merki um eldvirkni að undanförnu tengjast mestu hraunflæðigosum Íslandssögunnar, Skaftáreldum og Eldgjárgosinu, og raunar einnig Veiðivatnagosinu, mesta hraunflóði sem þekkt er í jarðsögu Íslands. Slíkir atburðir eru taldir gerast í svokölluðum landrekshrinum. Íslendingar hafa að undanförnu verið rækilegar minntir á eldvirkni landsins. Hver eldstöðin á fætur annarri hefur látið á sér kræla; Grímsvötn, Katla og nú síðast Hamarinn í Vatnajökli, en hann er talinn tengjast Bárðarbungu-eldstöðinni. Benda má að Lakagígar eru taldir hluti Grímsvatna-eldstöðvarinnar og Eldgjá er talin tengd Kötlu-eldstöðinni. En er hér eitttvert samhengi og þurfum við hugsanlega að fara að búa okkur undir eitthvað ennþá stærra? Jarðvísindamennirnir Helgi Björnsson, Oddur Sigurðsson og Freysteinn Sigmundsson ræða í viðtali við Stöð 2 möguleikann á stórfelldum hraungosum á svæðinu frá Mýrdalsjökli til Vatnajökuls, miðju heita reitsins undir Íslandi. Þeir taka þó skýrt fram að ekkert bendi til að slíkar hamfarir séu í uppsiglingu. Viðtölin má sjá í frétt Stöðvar 2.
Tengdar fréttir Búið að rýma í Álftaveri Búð er að rýma í Álftaveri og bæi í Höfðabrekku. Í Álftaveri var töluverður fjöldi fólks samankominn, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli, enda stóð til að ættarmót færi þar fram um helgina. Álftaver er lítil sveit í Vestur-Skaftafellssýslu, vestan við Kúðafljót og rétt austan við Mýrdalssand. 9. júlí 2011 09:06 Katla virðist vera farin aftur að sofa Litið er svo á að hræringum við Kötlu sé lokið í bili hjá Veðurstofu Íslands, en lítil sem engin skjálftavirkni hefur mælst nærri sigkötlum í Mýrdalsjökli frá miðnætti. Mikið hafði hægst um á svæðinu síðdegis í gær, en lítilsháttar skjálftavirkni mældist þó um klukkan tíu í gærkvöld. 10. júlí 2011 09:58 Eldstöðvarnar í Kötlu og Vatnajökli verður að vakta vel Hlaupin í Vatnajökli í gær og frá Kötlu um síðustu helgi skýrast bæði af eldvirkni og telja jarðvísindamenn ástæðu til að vakta báðar eldstöðvarnar vel. Engin merki sjást um yfirvofandi umbrot. 14. júlí 2011 19:45 Saga Kötlu Katla er eitt hættulegasta eldfjall landsins og hafa hlaup úr Kötlu valdið gríðarlegu tjóni á Suðurlandi. Talið er að Katla hafi gosið um tuttugu sinnum frá landnámi en síðasta stóra gos í Kötlu varð árið 1918. Mesta hættan af Kötlugosunum liggur í jökulhlaupum. 9. júlí 2011 11:54 Sigkatlar benda til að lítið gos sé hafið Sigkatlar hafa myndast sem gæti verið í samræmi við það að lítið gos sé hafið sem ekki er komið upp á yfirborðið, segir Sigurlaug Hjaltadóttir, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofunni. Sigurlaug hefur þetta eftir stýrimanni á þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þyrlan flaug yfir Mýrdalsjökul snemma í morgun. Þá sáust sigkatlarnir, en enginn gosmökkur sást. 9. júlí 2011 08:45 Jarðskjálfti í Kötlu - engin vísbending um gos Jarðskjálfti varð í Kötlu nú rétt eftir klukkan fjögur og mældist hann 3,1 á richter. Hjörleifur Sveinbjörnsson, jarðfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að um stakan atburð sé að ræða og ekkert bendi til þess að gos sé að hefjast. 13. júlí 2011 16:38 Kötlugos hugsanlega hafið Ef þetta er gos að þá er um að ræða lítið Kötlugos, segir Sigurlaug Hjaltadóttir, sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Gosórói hefur mælst í Kötlu á mælum Veðurstofunnar. Sigurlaug segist vera að bíða eftir upplýsingum frá sérfræðingi sem hún sendi með þyrlu Landhelgisgæslunnar fyrr í morgun til þess að kanna aðstæður. 9. júlí 2011 07:53 Hátt í 200 manns í fjöldahjálparstöðvum Hátt í 200 manns hafa komið saman í fjöldahjálparstöðinni á Kirkjubæjarklaustri og í Vík. Þar af eru um 180 á Kirkjubæjarklaustri en 14 í Vík, samkvæmt upplýsingum frá Kjartani Sturlusyni, framkvæmdastjóra hjá Rauða krossinum. 9. júlí 2011 12:15 Hlaup í Múlakvísl - myndir Enn og aftur létu náttúruöflin finna fyrir sér í nótt þegar hlaup hófst í Múlakvísl. Í morgun bárust svo fréttir af því að líklegast væri hafið gos í Kötlu. Meðfylgjandi myndir tók Þórir N. Kjartansson af hlaupinu klukkan átta í morgun. Smelltu á myndasafn hér að neðan til að skoða myndirnar. 9. júlí 2011 10:01 Þrír greinilegir sigkatlar „Það eru engin bein merki um eldgos. Það útilokar samt ekki að það hafi orði gos undir jöklinum. Það er mjög erfitt að skera úr um það," segir Einar Kjartansson jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Einar var staddur á Vík í Mýrdal þegar Vísir talaði við hann. 9. júlí 2011 11:55 Nýjar myndir af Mýrdalsjökli Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug með vísindamenn frá Raunvísindastofnun og Veðurstofu Íslands yfir Mýrdalsjökul, Kötlu, Múlakvísl og Mýrdalssand í dag. Á meðfylgjandi myndum sjást tveir sigkatlar mjög vel en greinilegt er að hrun hefur orðið í miðju þeirra. Myndirnar tóku menn á vegum Landhelgisgæslu Íslands. Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, sagði við fréttastofu í morgun að engin bein merki voru um að eldgos en hann útilokaði þó ekki að gos hafi orðið undir jöklinum. „Það er mjög erfitt að skera úr um það,“ sagði hann. 9. júlí 2011 16:27 Líklega jarðhiti sem orsakaði hlaup Ekki er hægt að útiloka að lítið gos hafi orðið undir Mýrdalsjökli segir jarðeðlisfræðingur. 11. júlí 2011 12:01 Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Lífið Fleiri fréttir Vill draga úr hvalveiðum en segir hendur sínar bundnar fyrir sumarið Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Sjá meira
Búið að rýma í Álftaveri Búð er að rýma í Álftaveri og bæi í Höfðabrekku. Í Álftaveri var töluverður fjöldi fólks samankominn, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli, enda stóð til að ættarmót færi þar fram um helgina. Álftaver er lítil sveit í Vestur-Skaftafellssýslu, vestan við Kúðafljót og rétt austan við Mýrdalssand. 9. júlí 2011 09:06
Katla virðist vera farin aftur að sofa Litið er svo á að hræringum við Kötlu sé lokið í bili hjá Veðurstofu Íslands, en lítil sem engin skjálftavirkni hefur mælst nærri sigkötlum í Mýrdalsjökli frá miðnætti. Mikið hafði hægst um á svæðinu síðdegis í gær, en lítilsháttar skjálftavirkni mældist þó um klukkan tíu í gærkvöld. 10. júlí 2011 09:58
Eldstöðvarnar í Kötlu og Vatnajökli verður að vakta vel Hlaupin í Vatnajökli í gær og frá Kötlu um síðustu helgi skýrast bæði af eldvirkni og telja jarðvísindamenn ástæðu til að vakta báðar eldstöðvarnar vel. Engin merki sjást um yfirvofandi umbrot. 14. júlí 2011 19:45
Saga Kötlu Katla er eitt hættulegasta eldfjall landsins og hafa hlaup úr Kötlu valdið gríðarlegu tjóni á Suðurlandi. Talið er að Katla hafi gosið um tuttugu sinnum frá landnámi en síðasta stóra gos í Kötlu varð árið 1918. Mesta hættan af Kötlugosunum liggur í jökulhlaupum. 9. júlí 2011 11:54
Sigkatlar benda til að lítið gos sé hafið Sigkatlar hafa myndast sem gæti verið í samræmi við það að lítið gos sé hafið sem ekki er komið upp á yfirborðið, segir Sigurlaug Hjaltadóttir, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofunni. Sigurlaug hefur þetta eftir stýrimanni á þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þyrlan flaug yfir Mýrdalsjökul snemma í morgun. Þá sáust sigkatlarnir, en enginn gosmökkur sást. 9. júlí 2011 08:45
Jarðskjálfti í Kötlu - engin vísbending um gos Jarðskjálfti varð í Kötlu nú rétt eftir klukkan fjögur og mældist hann 3,1 á richter. Hjörleifur Sveinbjörnsson, jarðfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að um stakan atburð sé að ræða og ekkert bendi til þess að gos sé að hefjast. 13. júlí 2011 16:38
Kötlugos hugsanlega hafið Ef þetta er gos að þá er um að ræða lítið Kötlugos, segir Sigurlaug Hjaltadóttir, sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Gosórói hefur mælst í Kötlu á mælum Veðurstofunnar. Sigurlaug segist vera að bíða eftir upplýsingum frá sérfræðingi sem hún sendi með þyrlu Landhelgisgæslunnar fyrr í morgun til þess að kanna aðstæður. 9. júlí 2011 07:53
Hátt í 200 manns í fjöldahjálparstöðvum Hátt í 200 manns hafa komið saman í fjöldahjálparstöðinni á Kirkjubæjarklaustri og í Vík. Þar af eru um 180 á Kirkjubæjarklaustri en 14 í Vík, samkvæmt upplýsingum frá Kjartani Sturlusyni, framkvæmdastjóra hjá Rauða krossinum. 9. júlí 2011 12:15
Hlaup í Múlakvísl - myndir Enn og aftur létu náttúruöflin finna fyrir sér í nótt þegar hlaup hófst í Múlakvísl. Í morgun bárust svo fréttir af því að líklegast væri hafið gos í Kötlu. Meðfylgjandi myndir tók Þórir N. Kjartansson af hlaupinu klukkan átta í morgun. Smelltu á myndasafn hér að neðan til að skoða myndirnar. 9. júlí 2011 10:01
Þrír greinilegir sigkatlar „Það eru engin bein merki um eldgos. Það útilokar samt ekki að það hafi orði gos undir jöklinum. Það er mjög erfitt að skera úr um það," segir Einar Kjartansson jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Einar var staddur á Vík í Mýrdal þegar Vísir talaði við hann. 9. júlí 2011 11:55
Nýjar myndir af Mýrdalsjökli Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug með vísindamenn frá Raunvísindastofnun og Veðurstofu Íslands yfir Mýrdalsjökul, Kötlu, Múlakvísl og Mýrdalssand í dag. Á meðfylgjandi myndum sjást tveir sigkatlar mjög vel en greinilegt er að hrun hefur orðið í miðju þeirra. Myndirnar tóku menn á vegum Landhelgisgæslu Íslands. Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, sagði við fréttastofu í morgun að engin bein merki voru um að eldgos en hann útilokaði þó ekki að gos hafi orðið undir jöklinum. „Það er mjög erfitt að skera úr um það,“ sagði hann. 9. júlí 2011 16:27
Líklega jarðhiti sem orsakaði hlaup Ekki er hægt að útiloka að lítið gos hafi orðið undir Mýrdalsjökli segir jarðeðlisfræðingur. 11. júlí 2011 12:01