Fjöldi íbúða sem Íbúðalánasjóður leysti til sín þrefaldaðist 31. maí 2011 19:27
Á einu ári þrefaldaðist sá fjöldi íbúða sem Íbúðalánasjóður hefur leyst til sín. Ljóst er að hið opinbera þarf aftur að leggja sjóðnum til umtalsvert nýtt eigið fé. Í Fjármálastöðugleikanum er fjallað um stöðu Íbúðalánasjóðs, en þar hafa vanskil jafnframt aukist. Fasteignalán í 90 daga vanskilum eru nú tæp tíu prósent heildarútlána sjóðsins. Þá hefur gjaldþrotum og árangurslausum fjárnámum hjá einstaklingum fjölgað verulega. Þau voru samtals 3.400 árið 2009, 4.400 árið 2010 og fyrstu mánuðir ársins 2011 benda til þess að þau gætu orðið 9.000 á þessu ári, en meirihlutinn eru árangurslaus fjárnám. Það þarf því ekki að koma á óvart að sprenging varð í fjölda íbúða sem sjóðurinn leysti til sín á síðasta ári. Í upphafi árs 2010 átti Íbúðalánasjóður 347 íbúðir, en undir árslok var fjöldi íbúðanna orðinn 1069. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir skýringuna blasa við. „Síðasta ár vorum við ennþá í fríu falli, síðasta ár samdráttarins og annað ár eftir fjármálakreppuna. Það var alveg ljóst að það myndi verða þróun að þessu tagi. Hvort þetta er meira eða minna heldur en búast mátti við fer eftir því hvað fólk bjóst við. Það er ekkert í þessum tölum sem fær okkur til að staldra mikið við." Í heftinu er jafnframt komið inn á eiginfjárvanda sjóðsins, en þar er sagt ljóst að ríkissjóður þarf aftur að leggja sjóðnum til umtalsvert nýtt eigið fé eða víkjandi lán, eigi markmið sjóðsins um 5% eiginfjárhlutfall að nást fyrir árslok. Sjóðurinn er þó ekki einn um að eiga í eiginfjárvanda, því veðhlutfall tæplega 20% fasteigna voru yfirveðsettar í ársbyrjun, sem merkir að hrein eign í fasteignunum er neikvæð. Fjöldi fasteigna með slíkt neikvætt eigið fé hafði þá vaxið um þrjú prósentustig á hálfu ári.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira