Ítalskur dagskrárstjóri ráðinn til RIFF 30. apríl 2011 14:00 Ítalinn Giorgio Gosetti hefur verið ráðinn dagskrárstjóri Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík.
Ítalinn Giorgio Gosetti hefur verið ráðinn dagskrárstjóri Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF. „Ég get fullyrt það að hann er tvímælalaust einn af bestu dagskrárstjórum í Evrópu og þótt víðar væri leitað,“ segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF. Gosetti hefur stjórnað dagskránni Venice Day á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum þar sem athyglinni er beint að óháðum myndum. Áður stjórnaði hann kvikmyndahátíðinni í Róm. „Það er mikilvægt fyrir okkur að vera með gott fólk í dagskrárdeildinni sem hefur samböndin og þekkinguna til að geta náð í bestu myndirnar. Það er frábært að maður af þessu kaliberi hafi áhuga á hátíðinni og vilji vinna með okkur,“ segir Hrönn sem vonast til að hann starfi næstu þrjú árin fyrir RIFF. Gosetti verður dagskrárstjóri Vitrana sem er keppnisflokkur hátíðarinnar og verður sérlegur ráðgjafi um aðra dagskrárhluta. Hann tekur við starfinu af Grikkjanum Dimitri Eipides sem hefur unnið fyrir hátíðina frá árinu 2005. Töluverð óvissa var um framtíð RIFF fyrr á árinu en núna eru hlutirnir komnir í betri farveg. Þar hjálpar til Media-styrkur sem hátíðin fékk hjá Evrópusambandinu upp á tæpar sex milljónir króna. Síðast fékk RIFF þennan styrk árið 2009. „Það eru ekki margar hátíðir sem fá þennan styrk. Hann skiptir sköpum fyrir okkur,“ segir Hrönn. Höfuðstöðvar hátíðarinnar, sem verður haldin í áttunda sinn í haust, hafa einnig verið færðar yfir á Tjarnargötu 12 við hliðina á Tjarnarbíói. - fb
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira