Heiðra Lebowski í fimmta sinn 2. mars 2011 08:00 Sigurvegarinn frá í fyrra, Hörður Guðlaugsson, er í miðjunni. Eftirhermur persónanna Walter og The Dude eru beggja megin við hann.
Fimmta árlega Big Lebowski hátíðin verður haldin 12. mars í Keiluhöllinni. Þar verður samnefndri kvikmynd Coen-bræðra frá árinu 1998 gert hátt undir höfði en myndast hefur í kringum hana dyggur aðdáendahópur víða um heim, þar á meðal hér á landi. „Síðasta hátíð var sú fjölmennasta hingað til. Það virðist alltaf passa að það séu tíu fleiri en árið áður," segir Svavar Helgi Jakobsson, sem skipuleggur hátíðina ásamt Ólafi Sverri Jakobssyni. 65 manns mættu í fyrra þar sem þátttakendur horfðu á The Big Lebowski, spiluðu keilu og kepptu um besta búninginn. Hörður Guðlaugsson bar þá sigur úr býtum annað árið í röð er hann mætti í bleyju, sem er tilvísun í eina setningu í myndinni. „Ég stórefast um að það verði bætt," segir Svavar Helgi um búninginn. Hann vonast til að Herði verði veitt hörð keppni í ár. „Hann er búinn að vera svolítill einvaldur. Hann hlýtur að vera búinn að toppa sig." Ný uppákoma verður á hátíðinni í þetta sinn. Hún nefnist „Fuckin' Fascist" þar sem keppendur kasta bolla í hausinn á hinum húðlata The Dude í gínuformi. Fjölmörg verðlaun verða veitt, meðal annars fyrir fyrstu fimm sætin í búningakeppninni, besta skorið í keilu, ásamt „Achiever"-heiðursverðlaununum. Miðar fást á Bolur.is á 2.500 kr. og þar er allt innifalið, þar á meðal Lebowski-stuttermabolur. - fb
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Sjá meira